Sjáið tindinn, þarna fór ég!

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Ófeigur Sig­urðs­son

Öræfi

Útgef­andi: Mál og menn­ing

„Maður verður svo syfj­aður og þreyttur í höfð­inu að vera sífellt upp­num­inn af feg­urð­inni“

Ef Guð­bergur Bergsson og Benedikt Gröndal hefðu eign­ast son og komið honum í fóstur til Rabelais er ekk­ert ólík­legt að hann hefði á end­anum skrifað eitt­hvað eins og Öræfi. Svona óstýr­láta bók þar sem ekki má á milli sjá hvort hug­mynd­irnar, skrif­nautnin eða erindi höf­und­ar­ins ræður för í flóð­inu.

Upp­lifunin er sú að ekk­ert ráði för. Þegar brestur á með (fjöldi) blað­síðna upp­taln­ingu á sjálfs­vígum á íslandi frá 16 til 18 hund­ruð þá sættir maður sig bara við það eins og hverja aðra ótíð. Sem auð­vitað býður upp á sína nautn eins og allir sem hafa verið veð­ur­tepptir eða búið við þriggja daga raf­magns­leysi geta vitnað um.

Í Öræfum er sagt frá hrapal­legri rann­sókn­ar­ferð aust­ur­rísks örnefna­fræð­ings í Öræfasveit­ina, sem að hætti slíkra ferða í skáld­skap er jöfnum höndum fræði­leg og per­sónu­leg. Af henni er sagt í flóknu end­ur­liti í gegnum mis­áreið­an­lega milli­liði. Eins og horft sé gegnum prisma, eða reynt að átta sig í spegla­sal í Tívolí.

Mann­lífið í Öræfum, nátt­úran og hug­myndir okkar um hana, nöfnin sem við veljum henni, með­ferðin sem hún sætir af okkar hendi og við af hennar. Allt er þetta undir þar sem Bern­harður Fing­ur­björg (já, hann heitir það) heldur í óbyggð­irnar með koff­ort fullt af þjóð­legum fróð­leik sem, drykkju­svolar og bar­fl­ugur úr 101 hafa hlaðið á hann í bóka­búð Braga, aðeins til að skjögra niður í Skafta­fell, illa bit­inn af villifé og sæta aflimun (já ég sagði það) af hendi hins kröft­uga dýra­læknis dr. Lassa (já hún heitir það), sem síðan skrá­setur sög­una, eða alla­vega ein­hverja gerð hennar. Varð­veislu­saga Fing­ur­bjarg­ar­sögu er flókn­ari en Landnámu, sem kemur reyndar líka við sögu. Í Landnámu er samt held ég engin atviks­saga sem jafn­ast á við þessa:

„Ein­hverju sinni á fjöllum beit tófa Flosa í þum­al­inn og vildi ekki sleppa, kyrkti þá Flosi tóf­una með hinni hend­inni og gekk í heilan dag með tóf­una dauða dinglandi á þuml­inum, hann gerð­ist þreyttur á hræ­inu um kvöldið og skar haus­inn af tóf­unni og svaf þannig um nótt­ina, dag­inn eftir gafst hann loks upp á hausnum líka og skar af sér þum­al­inn með vasa­hnífnum yfir morg­un­verð­ar­borð­inu.“

Í Landnámu er heldur ekk­ert sagt frá Morbid Angel, dauðarokks­hljóm­sveit frá Tampa í Florida­ríki. En hafið ekki áhyggjur, það er allt hér.

Já og Flosi þessi býr alltsvo á Svína­felli. Á einum stað er gefið laus­lega í skyn að hann sé mögu­lega ekki til. Svo hristir sögu­mað­ur­inn (hver sem það er) sig eins og blautur hundur og ævin­týra­ferðin heldur bara áfram.

Nú hef ég lesið þrjár bækur eftir Ófeig þennan. Hann er stór­kost­lega skemmti­legur á ein­hvern máta sem eng­inn leikur eftir honum. Varla einu sinni Guð­bergur, Benedikt eða François. Hvort sem hann er að lýsa sál­ar­lífi sr. Jóns Stein­gríms­sonar, inn­rás pepp­er­oni-pyls­unnar í bragð­heim Íslend­inga eins og í Land­vættum eða með þess­ari ótrú­legu sveita­ferð og óreglu­sögu úr sam­býli manna og nátt­úru.

Eina ástæðan fyrir því að þessi bók sætir ekki meiri tíð­indum er að bækur sæta ekki lengur tíð­indum.

Öræfi er eins og Öræfin. Ekki eins og neitt. Besta bók flóðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár