VIRK mun ekki taka við skjólstæðingum ríkis ef fullt framlag fæst ekki

VIRK- starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður mun ekki taka við ein­stak­lingum sem standa utan vinnu­mark­aðar, eru örorku­líf­eyr­is­þegar eða skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana á árinu 2015 að óbreyttu. Stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins til­kynnti Eygló Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þetta bréfleiðis á fimmtu­dag í kjöl­far þess að fjár­lög, sem gera ráð fyrir að fram­lag rík­is­ins til VIRK á árinu 2015 verði 200 millj­ónir króna, voru sam­þykkt. Samkvæmt lögum og samn­ingum sem hafa verið und­ir­rit­aðir átti fram­lag rík­is­ins til VIRK að vera 1,1 millj­arður króna á árinu 2015.

VIRK mun því ekki taka við þeim 200 millj­ónum króna sem sjóðnum er skammtað á fjár­lögum. Í bréf­inu segir enn­fremur að nú liggi „fyrir að ríkið mun ekki að standa við sam­komu­lagið og því er VIRK nauð­beygt til að til­kynna starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðv­unum um breyttar for­sendur þjón­ustu­kaupa á næsta ári“. Því muni VIRK „ekki geta tekið ein­stak­linga í þjón­ustu á árinu 2015 sem ekki er greitt iðgjald af í sjóð­inn".

Ríkið hefur ekki greitt sinn hluta


Virk er starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður sem stofn­aður var af Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) og Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA) í maí 2008. Í jan­úar 2009 var svo und­ir­rituð ný stofn­skrá og þá komu stétt­ar­fé­lög og atvinnu­rek­endur á opin­berum vinnu­mark­aði að sjóðnum. Tilurð sjóðs­ins byggir á sam­komu­lagi milli þeirra sem að honum standa um nýtt fyr­ir­komu­lag starfsend­ur­hæf­ingar í kjara­samn­ingum á vinnu­mark­aði sem gert var árið 2008.

[quote font="0" align="right"]Það fram­lag átti meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­lausir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana.[/quote]

Síðan þá hafa atvinnu­rek­endur og líf­eyr­is­sjóðir greitt hlut­fall af stofni iðgjalds til sjóðs­ins til að standa undir rekstri hans og starfsend­ur­hæf­ingu þeirra sem eru virkir á atvinnu­mark­aði. Ríkið átti síðan, sam­kvæmt lögum sem sam­þykkt voru árið 2012 og samn­ingum sem voru gerðir þegar VIRK var sett á fót, að greiða fram­lag til sjóðs­ins. Það fram­lag átti meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­lausir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana. Í ljósi þess hefur VIRK sinnt þeim skjól­stæð­ingum sem ríkið átti að greiða kostnað af. Ríkið hefur hins vegar ekki borgað sinn hluta.

Hafna framlagi ríkisins


Í fyrra, árið 2013, var gert óform­legt sam­komu­lag um að fresta fram­lagi rík­is­ins um eitt ár gegn því að það kæmi inn árið 2015. Fram­lagið átti að nema 1,3 millj­örðum króna. Þegar fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt í haust var hins vegar ekki gert ráð fyrir neinu fram­lagi. Þegar fjár­lögin voru loks sam­þykkt í þess­ari viku hafði fram­lagið hækkað úr 0 í 200 millj­ónir króna.

Í bréfi stjórn­ar­for­manns VIRK til ráð­herra segir: „Engar við­ræður hafa átt sér stað við for­svars­menn VIRK vegna þess­arar fjár­hæðar. Full­kom­lega óljóst er hvaða breyt­ingu þessi fjár­hæð á að hafa á rétt­indi hugs­an­legra skjól­stæð­inga VIRK eða skyldur VIRK gagn­vart þeim. Þá verður ekki séð að umræddar 200 millj­ónir breyti neinu er varðar við­horf stjórn­valda til sam­starfs við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og líf­eyr­is­sjóði um upp­bygg­ingu á atvinnu­tengdri starfsend­ur­hæf­ingu. Stjórn VIRK sér því engan mögu­leika á því að taka við þess­ari greiðslu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár