Reykjavíkurbréf: Öfgar að útiloka umræðu um innflytjendamál

Það er rétt og skylt að ræða heið­ar­lega og öfga­laust um hversu hratt ríki eigi að taka á móti erlendum rík­is­borg­ur­unum og hvaða skil­yrði þeir eigi að þurfa að upp­fylla. Þetta kemur fram í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins í dag. Þar segir einnig: „Öfgarnar felst í því að reyna að úti­loka slíka umræðu. Umræðu­bannið var meg­in­ein­kenni stjórn­mála­stefnu sem fáir vilja aðhyll­ast nú“. Sú stjórn­mála­stefna sem þar er vísað til er nas­ismi sem fjallað er um í fyrri hluta bréfs­ins.

[caption id="attachment_9379" align="align­right" width="150"] Davíð Oddsson, annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.[/caption]

Reykja­vík­ur­bréfið er skrifað af öðrum hvorum rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, þeim Davíð Oddssyni eða Haraldi Johanes­sen, en birt­ist nafn­laust. Bréfið í dag fjallar um sögu­lega kyn­þátta­hyggju og kyn­þátt­ar­hatur og síðan vikið að umræð­unni eins og hún er í nútím­anum. Þar segir að nú þurfi „lítið til að hreytt sé „ras­isti“ í menn þegar fyr­ir­ferð­ar­mestu kján­arnir telja sig hafa fengið síð­ustu töl­una í bingóinu sjái þeir orðið múlatti notað eftir merk­ingu sinni“.

[quote font="0" align="right"]Þar segir að nú þurfi „lítið til að hreytt sé „ras­isti“ í menn þegar fyr­ir­ferð­ar­mestu kján­arnir telja sig hafa fengið síð­ustu töl­una í bingóinu sjái þeir orðið múlatti notað eftir merk­ingu sinni“.[/quote]

Þarna er verið að vísa í gagn­rýni sem kom fram á Reykja­vík­ur­bréf sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í júlí í sumar þar sem höf­undur þess kall­aði Barack Obama, for­seta Banda­ríkj­anna, vera „blökku­maður (múlatti raunar)“. Orða­notk­unin vakti mikla athygli og sætti harðri gagn­rýni.

Kjánaleg hróp um rasisma


Umræða um inn­flytj­enda­mál og mögu­lega útlend­inga­andúð í íslenskum stjórn­málum hefur verið uppi í tengslum við ummæli sem féllu hjá fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins í aðdrag­anda síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­inga, sem virt­ust hafa skilað henni miklu fylgi. Ákveðinn hluti manna í Sjálf­stæð­is­flokknum hafa á und­an­förnum miss­erum velt upp sterkri afstöðu í inn­flytj­enda­málum sem mögu­legri stjórn­mála­skoðun sem flokk­ur­inn ætti að skoða alvar­lega að taka upp. Skrif þess efnis hafa til að mynda áður birtst í rit­stjórn­ar­skrifum Morg­un­blaðs­ins.

Í Reykja­vík­ur­bréf­inu í dag segir að það sé jafn­frá­leitt að forð­ast óþægi­lega þjóð­fé­lags­um­ræðu á borð við inn­flytj­enda­mál með aðkasti og hrópum og reyna að þagga hana niður með vísun til eigin for­dóma og hefja ras­ista­stimpil á loft. „Umræðan um sam­skipti Ísraela og nágranna þeirra á svo sann­ar­lega rétt á sér. Með sama hætti og rétt er og skylt að ræða heið­ar­lega og öfga­laust hversu hratt ríki, stórt eða smátt, ætlar að taka á móti erlendum rík­is­borg­urum og þá með hvaða skil­yrðum. Öfgarnar fel­ast í því að reyna að úti­loka slíka umræðu. Umræðu­bannið var meg­in­ein­kenni stjórn­mála­stefnu sem fáir vilja aðhyll­ast nú“.

Bréf­rit­ar­inn segir að „kjána­leg hróp manna um ras­isma án þess að ljóst sé hvað rétt­lætir meið­yrðin eru ekki til nokk­urs gagns. Yfir­borðs-kjag af því tagi og ógrund­aðar álykt­anir hafa þó ekki lang­tíma­á­hrif. Allt er sett í einn graut. Fæst stenst nokkra skoðun“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár