Pæling dagsins: Margt annað til en pólitískir hreppaflutningar

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Stjórn­völd eru að beita sér fyrir því þessa dag­ana, að opin­ber störf flytj­ist í meira mæli á lands­byggð­ina. Svo virð­ist sem margt komi til greina í þeim efnum. Flutn­ing­ur­inn á Fiski­stofu til Akur­eyrar er enn fyr­ir­hug­aður, þó allir starfs­menn Fiski­stofu séu á móti því og engin mál­efna­leg rök séu fyrir færsl­unni á starf­sem­inni. Nema að póli­tískir hreppa­flutn­ingar telj­ist vera mál­efna­leg rök. Byggða­stefna er algengt orð í orð­ræðu um þess mál­efni, og oft talað um skort á henni. Bréf­rit­ari er á því að mikil tæki­færi séu fyrir hendi á lands­byggð­inni, og að stjórn­mála­menn þurfi að nota aðrar aðferðir til þess að efla lands­byggð­ina en flytja opin­berar stofn­anir í heilu lagi þangað. Besta leiðin, að mati bréf­rit­ara, er að efla sam­göngur og þar með inn­viði fyrir upp­bygg­ingu, meðal ann­ars þegar kemur að ferða­þjón­ustu. En það mætti líka hugsa sér að skatta­lækk­anir á lands­byggð­inni, eins og tíðkast til dæmis í Norður-Noregi, geti ýtt undir atvinnu­sköpun og efl­ingu byggðar. Lands­byggðin er mik­il­væg hag­kerf­inu, og oft mikil gjald­eyr­is­sköpun sem fram fer þar á stórum og smáum vinnu­stöðum. Þá mætti efla með stuðn­ingi í gegnum létt­ara reglu­verk, fremur en að flytja opin­ber störf út á landi í stórum stíl.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár