Hornafjörður færður aftur undir umdæmi Suðurlandslögreglu

Sveita­fé­lagið Horna­fjörður mun heyra undir umdæmi lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­landi í stað umdæmis lög­reglu­stjór­ans á Aust­ur­landi. Ólöf Nordal, nýr inn­an­rík­is­ráð­herra, hefur tekið ákvörðun þar um og birt á heima­síðu ráðu­neytis síns.

Síðasta verk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­sæt­is­ráð­herra, sem dóms­mála­ráð­herra var að setja nýja reglu­gerð um lög­reglu­um­dæmi lög­reglu­stjóra, þar sem sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörður var látið telj­ast til umdæmis lög­reglu­stjór­ans á Aust­ur­landi. Með ákvörðun sinni færði þáver­andi dóms­mála­ráð­herra lög­regl­una á Höfn úr Suð­ur­kjör­dæmi yfir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem vill svo til að er hans kjör­dæmi.

Lög­reglu­yf­ir­völdum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum barst til­kynn­ing um reglu­gerð­ina í tölvu­pósti klukkan rétt rúm­lega eitt þann 4. des­em­ber, en þá var nýhaf­inn rík­is­ráðs­fundur á Bessa­stöðum þar sem Ólöf Nordal tók form­lega við sem nýr inn­an­rík­is­ráð­herra. Samhliða því færð­ust dóms­málin frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu aftur yfir í inn­an­rík­is­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár