Securitas sektað um 80 milljónir fyrir brot á samkeppnislögum

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur lagt 80 millj­óna króna sekt á Securitas fyrir brot á sam­keppn­is­lögum. Greint er frá nið­ur­stöð­unni á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Samkvæmt nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins mis­not­aði Securitas mark­aðs­ráð­andi stöðu sína á mark­aði fyrir örygg­is­gæslu fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki. Brot Securitas fólust í því að fyr­ir­tækið gerði sér­staka samn­inga við við­skipta­vini sína um svo­kall­aða Heima­vörn og Firma­vörn, sem fólu í sér að við­skipta­vin­unum var óheim­ilt að eiga við­skipti við aðra keppi­nauta Securitas í að minnsta kosti þrjú ár. Þá voru ákvæði í samn­ing­unum sem voru til þess fallin að skapa aukna tryggð við­skipta­vina við Securitas.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Securitas hafi verið mark­aðs­ráð­andi í örygg­is­gæslu fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki, og fyr­ir­tækið hafi haft mikla yfir­burði á því sviði. Þá hafi fyr­ir­tækið verið með um 65 til 70 pró­senta mark­aðs­hlut­deild á árunum 2006 til 2011, sem var tíma­bilið sem var til skoð­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins höfðu áður­nefndir samn­ingar tals­verð úti­lok­un­ar­á­hrif í för með sér, og tak­mörk­uðu mögu­leika minni keppi­nauta á að ná til sín auknum við­skiptum eða nýrra að kom­ast inn á mark­að­inn.

Í mál­inu hélt Securitas því fram að samn­ing­arnir feli í sér greiðslu­dreif­ingu, auk þess sem áhætta fyr­ir­tæk­is­ins væri mikil ef ekki kæmi til áður­nefndur bindi­tími. Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er ekki fall­ist á skýr­ingar Securitas að öllu leyti, heldur er nið­ur­staðan sú að út frá rekstr­ar­legum for­sendum geti fyr­ir­tækið ekki rét­tætt svo langan bindi­tíma.

Þá segir að end­ingu í frétt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins: „Er það því nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að einka­kaupa­samn­ingar Securitas með bindi­tíma til þriggja ára auk ákvæða sem skapa aukna tryggð við­skipta­vina við fyr­ir­tækið, feli í sér mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu og brot á 11. gr. sam­keppn­islaga. Vegna þess­ara brota er Securitas gert að greiða 80 milljón króna stjórn­valds­sekt í rík­is­sjóð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár