Verjendur í hrunmálum fá 205 milljónir í sinn hlut - ekki 260

Á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag birt­ist frétt undir fyr­ir­sögn­inni: „260 millj­ónir í laun verj­enda frá rík­inu.“ Þar kemur fram að rík­is­sjóður hafi greitt tæpar 260 millj­ónir króna í þókn­anir til verj­enda í dóms­málum sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hefur rekið fyrir dóm­stólum á árinu vegna svo­kall­aðra hrun­mála. Kjarninn birti frétt byggða á frétta­flutn­ingi Frétta­blaðs­ins, og vill af því til­efni árétta eft­ir­far­andi.

Í for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins er ekki tekið til­lit til greiðslu virð­is­auka­skatts af upp­hæð­inni. Þetta stað­festi blaða­mað­ur­inn sem skrif­aður er fyrir frétt­inni í sam­tali við Kjarnann.

Samkvæmt frétt­inni námu greiðslur rík­is­sjóðs til verj­enda í hrun­málum 256,9 millj­ónum króna á árinu. Í sam­an­tekt Frétta­blaðs­ins, sem byggði á ákvörð­unum dóm­stóla í stærstu efna­hags­brota­dómum árs­ins í hér­aðs­dómi og Hæsta­rétti Íslands, hefur verj­endum alls verið dæmdar þókn­anir fyrir röskar 350 millj­ónir króna. Þar af hafi sak­born­ingar verið dæmdir til að greiða tæpar 98 millj­ónir í laun til verj­enda sinna.

Í dóms­orði er upp­hæð sem dæmd er verj­endum ekki und­an­þegin 25,5 pró­senta virð­is­auka­skatti. Vissu­lega rennur öll upp­hæðin sem dæmd er til við­kom­andi lög­manns, en honum, eða eftir atvikum lög­manns­stof­unni sem hann starfar hjá, ber laga­leg skylda til að skila virð­is­auka­skatti aftur til rík­is­sjóðs.

Miðað við laus­lega útreikn­inga Kjarnans þýðir þetta að verj­endur sak­born­inga í hrun­málum fá í raun um 204,7 millj­ónir í sinn hlut vegna sinna starfa á árinu. Þannig skila þeir lið­lega 52,2 millj­ónum króna, af þeim 256,9 millj­ónum sem þeim hafa verið dæmdar á árinu, aftur til rík­is­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár