Vísir braut samninga þegar fyrirtækið hætti fiskvinnslu á Húsavík

Félags­dómur hefur úrskurðað að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Vísir hf. hafi brotið gegn ákvæðum kjara­samn­inga þegar fyr­ir­tækið hætti fisk­vinnslu á Húsavík. Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) rak málið fyrir dómnum, fyrir hönd Starfs­greina­sam­bands Íslands vegna Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags, gegn Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA) vegna Vísis. Greint er frá nið­ur­stöðu Félags­dóms á heima­síðu Fram­sýnar.

Tildrög máls­ins eru þau að Vísir, sem rekið hefur fisk­vinnslur í Grinda­vík, Djúpa­vogi, Húsavík og Þingeyri, tók ákvörðun í mars um að flytja alla starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins til Grinda­víkur. Þann 1. apríl síð­ast­lið­inn var starfs­fólki Vísis á Húsavík til­kynnt um lang­vinna rekstr­ar­stöðvun fisk­vinnsl­unnar vegna hrá­efn­is­skorts. Hinn 1. maí síð­ast­lið­inn var svo starfs­stöð Vísis á Húsavík lokað.

Ekki hægt að kenna hráefnisskorti um


Framsýn stétt­ar­fé­lag taldi rang­lega að verki staðið í mál­inu, ekki væri um rekstr­ar­stöðvun að ræða í skiln­ingi kjara­samn­inga. Verið væri að leggja niður starf­semi Vísis á Húsavík, og til stæði að opna frysti­hús í Grinda­vík. Þá hafi engum hrá­efn­is­skorti verið til að dreifa sem rétt­lætt gæti rekstr­ar­stöðvun sam­kvæmd lögum og kjara­samn­ingum.

Samkvæmt frétt á heima­síðu Fram­sýnar, urðu for­svars­menn Vísis ekki við áskor­unum stétt­ar­fé­lags­ins þess efnis að standa rétt að málum gagn­vart starfs­fólki sínu og eftir atvikum segja því upp með samn­ings­bundnum upp­sagn­ar­fresti og bjóða nýtt starf á nýjum stað. Andmæli stétt­ar­fé­lags­ins urðu til þess að þeim starfs­mönnum sem kusu að þiggja ekki nýtt starf í Grinda­vík, var sagt upp með samn­ings­bundnum hætti. Þar sem Vísir féllst ekki á sjón­ar­mið Fram­sýnar, að ekki væri um að ræða rekstr­ar­stöðvun vegna hrá­efn­is­skorts í skiln­ingi kjara­samn­inga, var höfðað mál á hendur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins fyrir Félags­dómi til að fá úr því skorið hvort fram­kvæmd Vísis sam­rýmd­ist ákvæðum kjara­samn­inga, er tryggir verka­fólki kaup­trygg­ingu í langvar­andi rekstr­ar­stöðvun.

Stöðvun fiskvinnslunnar átti aldrei að vera tímabundin


Félags­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að það lægi fyrir að stöðvun fisk­vinnsl­unnar á Húsavík hafi aldrei átt að vera tíma­bundin, eða standa aðeins meðan hrá­efn­is­skortur varði. Þvert á móti hafi verið ráð fyrir því gert áður en vinnslu­stöðv­unin var til­kynnt að vinnsla myndi ekki hefj­ast aftur á Húsavík. Engu máli skipti þó Vísir leiddi í ljós að afla­heim­ildir fyr­ir­tæk­is­ins dyggðu ekki til að halda uppi fullri starf­semi á öllum starfs­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins út fisk­veiði­árið.

Dómurinn komst að þeirri nið­ur­stöðu að túlka bæri ákvæði kjara­samn­inga á þann veg að vinnslu­stöðvun hlyti að vera tíma­bund­inn, það er meðan hrá­efn­is­skortur varir, en ákvæð­inu yrði ekki beitt þegar fyr­ir­sjá­an­legt væri að starf­semi hæf­ist ekki að nýju að liðnum þeim sex mán­aða hámarks­tíma sem mælt sé fyrir um í ákvæð­inu. Félags­dómur féllst því á kröfur ASÍ og dæmdi að rekstr­ar­stöðvun Vísis á Húsavík hafi brotið gegn ákvæðum kjara­samn­inga, og dæmdi Vísir til að greiða stefn­anda 400 þús­und krónur í máls­kostnað.

Hægt er að nálg­ast dóm Félags­dóms hér að neðan.

Domur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár