Fimm skrýtnir gerningar Vladimír Pútíns og hálfguðshugmyndin

Kastljós alheims­ins hefur beinst að Rúss­landi und­an­farið, sam­hliða botn­lausu falli olíu­verðs og rúss­nesku rúblunnar. Augun bein­ast vit­an­lega helst að Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, sem hefur verið iðinn við að reyna að sýna heim­inum mik­il­feng­leika og mátt rúss­neska veld­is­ins það sem af er ári. Samhliða hefur Pútín reynt að skapa hálf­guðsí­mynd um sjálfan sig með áherslu á karl­mennsku, þor, kjark og yfir­burði.

Í vik­unni var Pútin kos­inn maður árs­ins í Rúss­landi, fimmt­ánda árið í röð. Af því til­efni fannst Kjarn­anum til­valið að end­ur­birta upp­færðan topp fimm lista, sem birt­ist upp­haf­lega í app-tíma­riti Kjarnans í febr­úar síð­ast­liðnum, og fjallar um fimm skrýtin upp­á­tæki Pútíns sem ætlað var að ýta undir þessa nán­ast ómennsku ímynd sem mað­ur­inn vill að fólk hafi af honum.

5. Pútín finnur fornmuni

Í ágúst 2011 ákvað Pútín að skella sér í köfun í Svarta­haf­inu við strendur Suður-Rúss­lands. Þegar for­set­inn var búinn að kafa niður á nokk­urra metra dýpi fann hann fyrir algjöra til­viljun tvö grísk duft­ker frá sjöttu öld. „Fjár­sjóður,“ sagði blautur en skæl­bros­andi Pútín þegar hann steig upp úr sjónum og sýndi sjón­varps­fjöl­miðlum, sem fyrir aðra til­viljun voru staddir á staðnum, grip­ina. Í kjöl­farið fór hann að þylja upp ýmsar stað­reyndir um forn-grískt leir­tau.

4. Pútín grætur fyrir þjóð sína

Í Rúss­landi má for­set­inn bara sitja í átta ár í senn. Pútín þurfti því að fá vin sinn Dimitrí Medvedev til að halda hita á stólnum í eitt kjör­tíma­bil á meðan hann gerði sig gjald­gengan á ný. Á meðan var Pútín for­sæt­is­ráð­herra og réð áfram öllu. Þegar hann tók aftur við for­seta­tign­inni í mars 2012 hélt hann vit­an­lega sig­ur­ræðu á Rauða torg­inu í Moskvu. Það fyrsta sem vakti athygli var að húðin í and­lit­inu á for­set­anum hafði strekkst tölu­vert og hann var mun slétt­ari en aldur hans sagði til um. Það sem vakti hins vegar mesta athygli var að for­set­inn granít­harði skældi með ekka á meðan á ræð­unni stóð. Spuna­meist­arar Kreml vildu þó ekki meina að karl­mennið Pútín hefði bug­ast yfir þeirri ábyrgð sem kjós­endur hans höfðu sett á herðar for­set­ans. Ástæða tár­anna, að þeirra sögn, var kaldir vindar.

3.Pútín fer í karlmannlegt sumarfrí

Í ágúst 2009, þegar Pútín var for­sæt­is­ráð­herra, fór hann í sum­ar­frí, eins og menn gera. Með í för voru að sjálf­sögðu fjöl­miðlar svo hægt yrði að skrá­setja, og deila, athöfnun hans með þegn­unum. Pútín fór ekki til Ibiza eða á lúx­us­hótel í Mið-Aust­ur­löndum. Hann eyddi frí­inu í úti­legu í Síberíu. Þar synti hann flugsund á móti straumnum í á, safn­aði eldi­viði,bjarg­aði sér í nátt­úr­unni og spjall­aði við inn­fædda. Og svo fór hann auð­vitað á hest­bak. Þetta gerði hann allt ber að ofan.

2. Júdómeistarinn Pútín

Vladimír Pútín er ekki bara gáf­aður og úrræða­góður. Hnefar hans eru skráðir sem vopn. Og hann er með svarta beltið í júdó og finnst þræl­skemmti­legt að skella sér í hvíta bún­ing­inn til að skella and­stæð­ingi eða tveimur fyrir framan sjón­varps­mynda­vél­arnar. Pútín lætur það þó ekki duga. Hann er líka með svarta beltið í karate og er, að eigin sögn, marg­faldur Rúss­lands­meist­ari í rúss­nesku bar­daga­list­inni sambo.

1. Pútín róar hlébarða

Í febr­úar fór Pútín að skoða pers­neska hlé­barða í ólymp­íu­borg­inni Sotsjí. Með í för voru full­trúar úr alþjóð­legu ólymp­íu­nefnd­inni og, að sjálf­sögðu, fjöl­miðlar. Þar ákvað Pútín að fara inn í búr hlé­barðaunga sem heitir Grom. Pútín klapp­aði Grom og upp­lýsti fjöl­miðla um leið um hversu miklar kyn­verur hlé­barðar væru. Þeir gætu makað sig yfir 270 sinnum á viku þegar þannig lægi á þeim. Pútín lýsti aðdáun sinni á þess­ari eðl­un­ar­fýsn og -getu. Athyglin fór eitt­hvað í taug­arnar á Grom, sem réðst að sögn rík­is­rek­innar rúss­neskrar sjón­varps­stöðvar að frétta­mönnum. Pútín ákvað í kjöl­farið að taka hlé­barð­ann í fangið og róa hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár