Birna Einars: Fagna því að niðurstaða sé komin í málið

„Við höfum lagt ríka áherslu á að starf­semi bank­ans sé í sam­ræmi við sam­keppn­is­lög og höfum m.a. skipað sér­stakan ábyrgð­ar­að­ila sam­keppn­is­mála sem er með reglu­legt eft­ir­lit með sam­keppn­is­málum innan bank­ans,“ segir Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, en bank­inn greiddi 380 millj­óna króna sekt vegna sam­keppn­islaga­brota. Eins og greint var frá í dag gerðu stóru bank­arnir allir sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið vegna rann­sóknar þess á greiðslu­korta­mark­aðnum hér á landi. Sam­an­lagt þurfa bank­arnir, og síðan Valitor og Borgun, að greiða 1.620 millj­ónir króna. Lands­bank­inn og Arion banki greiða 450 millj­ónir króna hvor, Valitor 220 millj­ónir og Borgun 120 millj­ónir.

Birna fagnar því að mál­inu sé lokið. „Ég fagna því að það sé komin nið­ur­staða í þetta mál. Íslands­banki hefur í þessu máli átt gott sam­starf með Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og var fyrstur máls­að­ila til að ná sátt. Sam­keppn­is­eft­ir­litið leit til þess í ákvörðun sekta og hlaut Íslands­bank­inn því lægstu sekt­ina af við­skipta­bönk­unum þar sem sam­starfsvilji bank­ans hafði jákvæð áhrif á fram­göngu máls­ins í heild. Starfs­menn bank­ans voru í góðri trú um að þetta fyr­ir­komu­lag væri lög­legt og eru engin gögn í mál­inu sem sýna annað. Í sátt­inni er kveðið á um að bank­arnir skuli hag­ræða í þeim rekstri sínum sem teng­ist korta­út­gáfu og þjón­ustu við kort­hafa. Nýlega samdi bank­inn við MasterCard Europe um útgáfu á öllum kortum bank­ans. Með því að velja einn sam­starfs­að­ila getur bank­inn betur mætt auknum kröfum við­skipta­vina tengdum t.a.m. net­banka og tækninýj­ungum en erum um leið að hag­ræða og ein­falda vöru­fram­boð sem er í takt við kröfur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins,“ sagði Birna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár