Marel verðmetið á átta prósent yfir skráðu gengi

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans verð­metur Marel á 0,93 evrur, eða 143,6 krónur á hlut, sem er átta pró­sent yfir skráðu gengi félags­ins þann 16. des­em­ber 2014, en þá var það 133 krónur á hlut. Það sem helst er talið vinna með félag­inu, horft fram á næsta ár, eru hrá­vöru­verð­lækk­anir, efna­hags­bati í Banda­ríkj­unum, ódýrt láns­fjár­magn í heim­inum og end­ur­nýj­un­ar­þörf við­skipta­vina félags­ins.

Á þremur mán­uðum hefur mark­aðsvirði Marel hækkað um 35 pró­sent, og hefur afkoma félags­ins verið yfir væt­ingum grein­enda.

Hag­fræði­deildin býst við því að árið 2015 verði gott ár fyrir Marel. „Við gerum ráð fyrir 12 pró­sent tekju­vexti á næsta ári og að EBIT árs­ins verði 62,4 millj­ónir evra. Við áætlum tíu millj­ónir evra í ein­skiptis­kostnað í sam­ræmi við áætlun félags­ins sjálfs og því er leið­rétt EBIT fyrir árið 2015 72,4 millj­ónir evra,“ segir meðal ann­ars í verð­mat­inu, og rök­stuðn­ingi fyrir hluta­bréfa­ráð­gjöf­inni. Ráðgjöf hag­fræði­deild­ar­innar er að halda bréf­unum.

Sjá má verð­matið í heild sinni hér að neðan.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans - Verðmat - Marel 17.des­em­ber 2014 (1)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár