Stóru bankarnir og kortafyrirtækin sektuð um 1,6 milljarða

Arion banki, Íslands­banki, Lands­bank­inn og greiðslu­korta­fyr­ir­tækin Borgun og Valitor hafa fall­ist á að greiða 1,6 millj­arða króna sekt til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. vegna rann­sóknar eft­ir­lits­ins á sam­keppn­is­hömlum á greiðslu­korta­mark­aði. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Fyr­ir­tækin hafa þar með gert sáttir við Sam­keppn­is­eft­ir­litið og við­ur­kenna um leið að hátt­semi þeirra hafi hvorki verið í sam­ræmi við sam­keppn­is­lög né EES-samn­ing­inn. Þá fall­ast þau á að ráð­ast í umfangs­miklar aðgerðir til að auka sam­keppni.

Kortaþjónustan rúllaði boltanum af stað


Málið má rekja til kvört­unar Korta­þjón­ust­unar ehf. til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Fyr­ir­tækið taldi að ofan­greind fyr­ir­tæki hefðu gerst brot­leg við lög með ýmsum aðgerðum sem fyr­ir­tækið taldi að hefðu hindrað sam­keppni á mark­aði. Þann 8. mars birti Sam­keppn­is­eft­ir­litið frum­mat sitt á mál­inu í því skyni að auð­velda fyr­ir­tækj­unum að nýta and­mæla­rétt sinn. Í kjöl­farið ósk­uðu bank­arnir, Borgun og Valitor eftir því að heim­ild sam­keppn­islaga til að ljúka málum með sátt yrði nýtt.

Vegna sátt­ar­innar verða breyt­ingar á greiðslu­korta­mark­aði, þannig að hámark verður sett á milli­gjald sem er þóknun sem rennur til bank­anna, sem útgef­anda greiðslu­korta, fyrir þjón­ustu sem bankar veita sölu­að­ilum, meðal ann­ars versl­unum, vegna greiðslu­korta­notk­unar. Sam­keppn­is­eft­ir­litið full­yrðir í til­kynn­ingu að breyt­ing­arnar muni leiða til lækk­unar frá því sem nú er. Þá leiði þær til auk­ins gagn­sæis í gjald­töku sem sé ætlað að hafa í för með sér aukna hag­ræð­ingu. Jafn­framt muni Valitor og Borgun skilja á milli útgáfu­þjón­ustu og færslu­hirð­inga, en sam­rekstur þess­ara starfs­hátta hafi falið í sér sam­keppn­is­hindr­anir gagn­vart öðrum keppi­nautum á greiðslu­korta­mark­aði. Þá er horfið frá því að keppi­nautar á við­skipta­banka­mark­aði eigi saman greiðslu­korta­fyr­ir­tæki, sem hafi ekki gef­ist vel í sam­keppn­is­legu til­liti. Samhliða er tryggt að Valitor og Borgun þjón­usti aðra en eig­endur sína á jafn­ræð­is­grund­velli, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Samkeppniseftirlitið fagnar niðurstöðunni


Þar segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins: „Sam­keppn­is­eft­ir­litið fagnar því að nið­ur­staða sé nú fengin í þessa umfangs­miklu rann­sókn. Þær breyt­ingar sem sátt­irnar fela í sér eru mik­il­vægur áfangi í því að auka sam­keppni á fjár­mála­mark­aði, sam­fé­lag­inu til hags­bóta. Aðgerð­irnar eru jafn­framt liður í áherslum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur starfað eftir und­an­gengin ár.“

Sam­keppn­islaga­brotin sem um ræðir snúa að fram­kvæmd við ákvörðun milli­gjalda og við veit­ingu vild­ar­punkta, á árunum 2007 til og með 2009.

Valitor og Borgun, sem hafa verið í eigu keppi­nauta á fjár­mála­mark­aði, Valitor í eigu Arion banka og Lands­bank­ans og Borgun í eigu Íslands­banka og Lands­bank­ans. Eign­ar­haldið hefur verið óheppi­legt í sam­keppn­is­legu til­liti að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Sátt­irnar sem fyr­ir­tækin hafa nú und­ir­gengis breyta þessu, og verður fram­vegis óheim­ilt að hvort þess­ara greiðslu­korta­fyr­ir­tækja verði í eigu tveggja eða fleiri við­skipta­banka. Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá hefur Lands­bank­inn þegar selt eign­ar­hlut sinn í Valitor og Borgun.

Íslandsbanki naut sérstakrar ívilnunar


Sekt Íslands­banka nemur 380 millj­ónum króna, sekt Arion banka og Lands­bank­ans nemur 450 millj­ónum króna, sekt Valitors nemur 220 millj­ónum króna og sekt Borgunar nemur 120 millj­ónum króna.

Við ákvörðun sekta naut Íslands­banki sér­stakrar íviln­unar á grund­velli þess að hann lauk sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyrstur máls­að­ila. Þessi ríki sam­starfsvilji Íslands­banka hafði mjög jákvæð áhrif á fram­gang og nið­ur­stöðu máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár