Pæling dagsins: Ráðamenn standa á gati útaf hagtölunum

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Frá því Hagstofa Íslands birti hag­tölur sínar 5. des­em­ber, þar sem fram kom að hag­vöxtur á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hefði verið 0,5 pró­sent, hefur þögnin frá stjórn­mála­mönnum, sér­stak­lega Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, verið sér­kenni­leg. Þessar tölur komu stjórn­mála­mönnum í opna skjöldu, og þeir vita ekk­ert hvernig þeir eiga að taka þeim. Í stuttu máli hefur hag­vöxtur verið óra­fjarri spám upp á 2,7 til 3,1 pró­sent, og þetta er óra­fjarri for­sendum fyrir fjár­lögum þessa árs og næsta sömu­leiðis. Í fjár­laga­frum­varp­inu voru for­sendur fjár­laga 3,4 pró­sent, og hafa fjár­lögin nú verið sam­þykkt. Spurn­ingin er; finnst stjórn­mála­mönnum þetta engu máli skipta?

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár