Costco opnar risaverslun í Garðabæ fyrir næstu jól

Banda­ríski smá­söluris­inn Costco, sem er þriðja stærsta smá­sölu­keðja í heimi, ætlar að opna verslun í Garðabæ fyrir jólin 2015. Versl­unin verður stað­sett í 14 þús­und fer­metra versl­un­ar­hús­næði við Kauptún sem Costco hefur fest kaup á. Frá þessu var greint í kvöld­fréttum RÚV.

Það spurð­ist út í júlí að Costco hefði áhuga á að reyna fyrir sér á íslenska smá­sölu­mark­aðnum. Í versl­unum fyr­ir­tæk­is­ins er mikið vöru­úr­val, allt frá mat­vöru yfir í dekk og bensín. Síð­ast­liðin sumar kann­aði fyr­ir­tækið meðal ann­ars hvort það myndi fá að selja áfengi í búðum og hvort það fengi að flytja inn ferskt kjöt og lyf til að selja í verslun sinni, en allt þetta er harð­bannað á Íslandi sem stendur. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, sló hug­mynd­irnar þó ekki út af borð­inu þegar hún var innt eftir við­brögðum.

[caption id="attachment_14784" align="alignnone" width="1024"] Val for­svars­manna Costco um stað­setn­ingu versl­un­ar­innar stóð á milli Korpu­torgs og Kauptúns.[/caption]

Í kvöld­fréttum RÚV var hins vegar greint frá því að engar slíkar und­an­þágur hefðu feng­ist. Það hafi samt ekki gert það að verkum að Costco hafi hætt við. Valið fyrir versl­un­ina hafi staðið á milli Korpu­torgs og Kauptúns og núverið hafi for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins tekið ákvörðun um að setja hana upp í Garðabæ.

Í frétt RÚV var rætt við Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóra í Garðabæ, sem sagði að koma Costco hefði mikla þýð­ingu fyrir bæinn. „En síð­ast en ekki síst hefur þetta mikla þýð­ingu fyrir sam­keppn­ina og vöru­verð á Íslandi og því fögnum við auð­vitað sér­stak­lega,“ sagði Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár