Björn Ingi orðinn stjórnarformaður DV

Ný stjórn DV ehf., sem á og rekur DV og DV.is, var kjörin á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var á skrif­stofu mið­ils­ins í dag. Björn Ingi Hrafns­son tók þá við sem stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk hans voru Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóri Vef­pressunnar, og lög­mað­ur­inn Sigurvin Ólafsson kjörnir í þriggja manna stjórn. Vara­maður í stjórn verður Jakob Hrafns­son, bróðir Björns Inga.

Reynir Trausta­son, fyrrum rit­stjóri DV, og Jón Trausti Reyn­is­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri DV, mættu báðir á fund­inn, en þeir eru enn á meðal hlut­hafa í félag­inu. Auk þeirra mætti frá­far­andi stjórn.

Keypti um 70 prósent í DV


Pressan ehf., móð­ur­fé­lag Vef­pressunnar og vef­miðl­anna Pressunnar, Eyjunnar og Bleikt, keypti um 70 pró­sent hlut í DV ehf. í nóv­em­ber. Í kjöl­farið var til­kynnt að Vef­pressan og DV myndu sam­ein­ast og að Björn Ingi Hrafns­son yrði útgef­andi allra miðla hins sam­ein­aða fyr­ir­tækis. Kaupin voru bundin sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem veitti Vef­press­unni und­an­þágu­heim­ild fyrir kaup­unum í síð­ustu viku. Eftir að sú heim­ild var veitt gátu félögin byrjað að sam­þætta verk­lag og þjón­ustu, meðal ann­ars aug­lýs­inga­sölu.

[caption id="attachment_10788" align="alignnone" width="640"] Björn Ingi Hrafns­son verður útgef­andi og stjórn­ar­for­maður hins sam­eig­in­lega félags.[/caption]

Und­an­þágu­heim­ildin sem um ræðir varðar bann við sam­runa fyr­ir­tækja á meðan hann er til umfjöll­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Auk þess var sett hefð­bundið skil­yrði við und­an­þágu­heim­ild­ina, að ekki sé gripið til neinna aðgera sem gera það ómögu­legt að láta sam­runa fyr­ir­tækja ganga til baka, enda athugun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins ekki lokið.

Ekki upplýst um kaupverð né fjármögnun


Björn Ingi hefur ekki viljað upp­lýsa um hvert kaup­verð hluts­ins í DV var né hvernig kaupin voru fjár­mögnuð. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í nóv­em­ber sagði hann: „Kaup­verðið er trún­að­ar­mál. Og sömu­leiðis hvernig þau eru fjár­mögnuð, en þetta er sam­vinnu­verk­efni með þeim sem áttu blaðið.“

Vef­pressan keypti hlut­inn af hópi sem leiddur var af Þor­steini Guðn­a­syni, fyrrum stjórn­ar­for­manni DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár