Komugjöld raunhæf samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir SAF

Samkvæmt lög­fræði­á­liti sem unnið var að beiðni Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) í lok sept­em­ber brýtur komu­gjald á flug- og skipaf­ar­þega ekki í bága við EES-samn­ing­inn, ef tryggt er að þau taki með sam­bæri­legum hætti til milli­landa- og inn­an­lands­flugs. Þrátt fyrir nið­ur­stöðu lög­fræði­á­lits­ins, og vilja félags­manna SAF að sam­tökin beittu sér fyrir inn­leið­ingu komu­gjalda, ákvað stjórn SAF að þau væru ekki álit­legur kostur til að afla fjár til nátt­úru­verndar.

Eins og Kjarninn greindi frá í gær, stóð vilji félags­manna SAF til þess að sam­tökin legðu áherslu á að komið yrði á sér­stöku komu­gjaldi, til að standa straum af kostn­aði við bráð­nauð­syn­lega upp­bygg­ingu og verð­veislu ferða­manna­staða á Íslandi. Hækkun gistin­átta­gjalds­ins var fjórði álit­leg­asti kost­ur­inn í stöð­unni að mati félags­manna SAF, og nátt­úrupassi, sem er sú leið sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, hefur nú ákveðið að fara, hafn­aði í sjötta sæti.

Samkvæmt könnun sem SAF fram­kvæmdi á meðal sinna félags­manna, lögðu þeir sömu­leiðis áherslu á að ásýnd ferða­manna­staða tæki ekki breyt­ingum vegna fyr­ir­hug­aðrar gjald­töku, til að mynda með til­komu gjald­skýla eða eft­ir­lits­manna.

Þrátt fyrir ein­dregin vilja félags­manna SAF um að komu­gjöldum yrði komið á lagði stjórn sam­tak­anna til á dög­unum að gistin­átta­gjaldið yrði hækkað til að fjár­magna nátt­úru­vernd. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans olli ákvörðun stjórn­ar­innar, að ganga gegn vilja félags­manna, tölu­verðri furðu og reiði meðal hótel- og gisti­húsa­eig­enda, sem að minnsta kosti í einu til­felli leiddi til úrsagnar úr sam­tök­unum.

Ákvörðun sem sögð var byggja á ítarlegri úttekt


Í sam­tali við Kjarnann lagði Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SAF, ríka áherslu á að ákvörðun stjórn­ar­innar hefði byggt á ítar­legri úttekt hennar á þeim gjald­töku­leiðum sem félags­menn SAF vildu helst að sam­tökin fylktu sér á bak­við. Þá hafi til að mynda atvinnu­vega­ráðu­neytið tjáð sam­tök­unum að sér­stök komu- og landamæra­gjöld brjóti í bága við alþjóð­lega samn­inga eins og Schengen og samn­ing­inn um evr­ópska efna­hags­svæðið. Full­yrð­ingar ráðu­neyt­is­ins, að því er fram­kvæmda­stjóri SAF segir, eru athygl­is­verðar í ljósi þess að komu­gjöld lifa góðu lífi innan Evr­ópu­sam­bands­ins, meðal ann­ars í Bret­landi, Þýska­landi og Frakk­landi.

Í við­leitni sinni til að kanna ger­leika komu­gjalda, leit­aði SAF eftir lög­fræði­á­liti hjá lög­manns­stof­unni LEX. Kjarninn hefur lög­fræði­á­litið undir höndum og birtir hér. Þar kemur fram að sér­stakt komu­gjald sé vel raun­hæfur mögu­leiki.

[caption id="attachment_8884" align="aligncenter" width="640"] Samkvæmt lög­fræði­á­liti sem unnið var að beiðni SAF eru komu­gjöld álit­legur kostur til að afla fjár til nátt­úru­verndar.[/caption]

Álitsgerð sem segir aðra sögu


Samkvæmt álits­gerð­inni, sem dag­sett er 6. októ­ber síð­ast­lið­inn, beindi SAF til­teknum spurn­ingum til lög­manns­stof­unnar í tveimur liðum. Annars vegar: „Er eitt­hvað því til fyr­ir­stöðu að sett verði komu­gjöld eða brott­far­ar­gjöld á flug­far­þega sem yrðu inn­heimt í gegnum far­seðla? Hvernig væri sam­hliða hægt að inn­heimta slík gjöld af skipaf­ar­þegum?“ Og hins vegar: „Er eitt­hvað því til fyr­ir­stöðu að sett verði komu­gjöld/landamæra­gjöld á far­þega og inn­heimt við landa­mæri, svo sem í flug­stöðvum og við hafnir?“

Lög­mann­stofan skoð­aði sér­stak­lega hvernig slík gjald­taka sam­ræm­ist ákvæðum EES-samn­ings­ins. Þar komu einkum til skoð­unar reglur um frjálst flæði þjón­ustu og bann við mis­munun. Kjarni EES-samn­ings­ins felst í því að með honum mynda aðild­ar­ríki samn­ings­ins einn sam­eig­in­legan innri markað sem grund­vall­ast á regl­unum um hið svo­kall­aða fjór­frelsi, það er frjálsa vöru­flutn­inga, frjálsa fólks­flutn­inga, frjálsa þjón­ustu­starf­semi og frjálsa fjár­magns­flutn­inga.

Samkvæmt lög­fræði­á­lit­inu var það talið afar var­huga­vert að ráð­ast í inn­heimtu á sér­stöku landamæra­gjaldi, með vísan til þess að ein­stak­lingar hefðu ferð­ast yfir íslensk landa­mæri. Þá myndi slík gjald­taka vera í and­stöðu við þau meg­in­mark­mið um sam­eig­in­legan innri markað sem EES-samn­ing­ur­inn hvíli á, enda feli hún í sér meðal ann­ars hindrun á frjálsum fólks­flutn­ingum og frjálsri þjón­ustu­starf­semi, auk þess sem hún myndi bitna með rík­ari hætti á ein­stak­lingum sem hafa búsetu utan Íslands. Það kynni að vera ígildi mis­mun­unar á grund­velli þjóð­ernis eða búsetu, sem sé í and­stöðu við grund­völl samn­ings­ins.

Annað var upp á ten­ingnum hvað sér­stök komu­gjöld varðar, sam­kvæmt lög­fræði­á­lit­inu frá LEX. Þar kemur fram að meg­in­reglan sé sú að aðild­ar­ríkjum sé í sjálfs­vald sett hvernig þau haga þess háttar skatt­lagn­ingu og stefnu­mótun í þeim efnum. Hins vegar megi ekki mis­muna far­þegum í inn­an­lands- og milli­landa­flugi, án sér­stakrar rétt­læt­ingar sem yrði van­kvæðum háð að rök­styðja.

Þá segir orð­rétt í sam­an­dregnu svari lög­mann­stof­unnar við fyrri spurn­ingu SAF, hvað varðar komu­gjöld eða brott­far­ar­gjöld: „Ætla má að unnt sé að leggja á komu-eða brott­far­ar­gjöld vegna flug­far­þega eða skipaf­ar­þega hér á landi ef tryggt er að þau taki með sam­bæri­legum hætti til ferða á milli aðild­ar­ríkja EES-svæð­is­ins og ferða inn­an­lands. Dóma­fram­kvæmd bendir til þess að hvers konar fyr­ir­komu­lag við gjald­töku sem leggst með þyngri hætti á ferða­lög milli aðild­ar­ríkja EES-svæð­is­ins en ferða­lög inn­an­lands skerði þjón­ustu­frelsi. Þá mega slík gjöld ekki fela í sér mis­munun eftir þjóð­erni eða búsetu og skulu því taka jafnt til íslenskra rík­is­borg­ara og rík­is­borg­ara ann­arra aðild­ar­ríkja EES-svæð­is­ins.“

Stuðningur við náttúrupassann fer ört minnkandi


Aðilar innan ferða­þjón­ust­unnar hafa talað fyrir því að komu­gjaldi verði komið á fót til að afla tekna til að standa undir bráð­nauð­syn­legri upp­bygg­ingu og varð­veislu ferða­manna­staða á Íslandi. Hug­myndin nýtur tölu­verðs fylgis innan geirans, eins og vilji félags­manna SAF ber með sér. Ljóst má vera að stórir hags­mun­að­ilar í flug­rekstri hér á landi hafa barist með kjafti og klóm gegn því að komu­gjaldið renni inn í far­miða­verð þeirra.

Samkvæmt könnun MMR, sem birt­ist í gær, hefur orðið mikil breyt­ing a afstöðu almenn­ings til nátt­úrupass­ans svo­kall­aða. Í könn­un­inni sögð­ust 31,2 pró­sent aðspurðra fylgj­andi pass­anum, sam­an­borið við 47,2 pró­sent í apríl. Þá eru þeir sem styðja rík­is­stjórn­ina frekar fylgj­andi pass­anum en aðrir, og eldra fólk sömu­leiðis. Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar er helm­ingur íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á móti pass­anum, en 28,3 pró­sent fylgj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár