Sigmundur Davíð vill að ráðherrar ráði einir um staðsetningu stofnana

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp til breyt­inga á lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands frá árinu 2011, á Alþingi 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Í frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra er meðal ann­ars lagt til að sú breyt­ing verði gerð á lög­unum, að það verði fram­vegis í valdi hvers ráð­herra að ákveða um aðsetur stofn­ana sem undir hann heyra. Þá er sömu­leiðis lagt til að kveðið verði á um almenna heim­ild til að flytja starfs­menn á milli ráðu­neyta og stofn­ana, liggi fyrir sam­þykki við­kom­andi ráð­herra fyrir flutn­ing­unum sem og for­stöðu­manns stofn­un­ar­innar og starfs­manns­ins sjálfs, án þess að aug­lýsa lausar stöður til umsóknar.

Ný heild­ar­lög um Stjórn­ar­ráð Íslands tóku gildi í sept­em­ber 2011. Í eldri lögum um stjórn­ar­ráðið var kveðið á um heim­ild ráð­herra til að ákveða aðsetur stofn­ana sem undir hann heyra. Þeirri heim­ild var bætt inn í lögin eftir nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í svoköll­uðum Land­mæl­ing­ar­dómi frá árinu 1998. Þá var ákvörðun Guð­mundar Bjarna­sonar, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, dæmd ólög­mæt í Hæsta­rétti, en dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að valdið til að ákveða stað­setn­ingu stofn­unar og flutn­ing hennar væri hjá Alþingi. Í lög­unum um Stjórn­ar­ráð Íslands, sem tóku gildi árið 2011, var tekið út ákvæði um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt ráð­herra um flutn­ing og stað­setn­ingu stofn­ana sem undir hann heyra.

„Geðþóttaákvarðanir“ ráðherra ráði ekki för


Bandalag háskóla­manna (BHM) hyggst senda ítar­lega grein­ar­gerð um frum­varp Sig­mundar Davíðs um breyt­ingar á lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands, þegar það kemur til umsagnar í þing­nefnd. BHM hefur hins vegar nú þegar gert athuga­semdir við frum­varpið, þar sem banda­lagið leggst alfarið gegn því. Banda­lagið hyggst senda athuga­semd­irnar til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og þing­manna.

[quote font="0" align="right"]„Með því móti verði kom­ist hjá því að ráð­herrar taki geð­þótta­á­kvarð­anir um flutn­ing rík­is­stofn­ana, enda geti slíkar ákvarð­anir komið mjög hart niður á starfs­mönnum og fjöl­skyldum þeirra.“[/quote]

BHM telur ekki rétt að end­ur­vekja umrædda heim­ild ráð­herra til að ákveða flutn­ing og stað­setn­ingar stofn­ana. Ekki hafi verið til­viljum að heim­ildin var felld brot, og frum­varpið sem varð að núgild­andi lögum um stjórn­ar­ráðið hafi verið samið í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í sam­ráði við sér­fræð­inga á sviði stjórn­skip­unar- og stjórn­sýslu­réttar.

Í athug­semdum BHM telur banda­lagið að vald til að ákveða stað­setn­ingu og flutn­ing rík­is­stofn­ana eigi að vera áfram hjá Alþingi. Með því móti verði kom­ist hjá því að ráð­herrar taki geð­þótta­á­kvarð­anir um flutn­ing rík­is­stofn­ana, enda geti slíkar ákvarð­anir komið mjög hart niður á starfs­mönnum og fjöl­skyldum þeirra. Þá sé það ekki í sam­ræmi við lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð að fela ráð­herrum ein­ræð­is­vald til að ákveða hvar stofn­anir skuli vera, eins og gert sé ráð fyrir í frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra. Breyt­ingin sem felist í frum­varp­inu auki á laus­ung og geti ýtt undir að við hver rík­is­stjórn­ar­skipti og/eða ráð­herra­skipti, yrðu gerðar breyt­ingar á stofn­unum, þær sam­ein­aðar, lagðar niður eða fluttar til, með til­heyr­andi kostn­að­ar­auka, raski og óþæg­indum, sem bein­línis gætu stefnt starfs­ör­yggi starfs­manna í hættu og vegið að rétt­indum þeirra að öðru leyti.

Þá telur BHM að sá valda­flutn­ingur sem felist í frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra sé í miklu ósam­ræmi við þau við­horf sem uppi hafi verið í sam­fé­lag­inu á síð­ustu árum um að efla beri lög­gjaf­ar­valdið og Alþingi sem stofnun og draga að sama skapi úr áhrifum fram­kvæmd­ar­valds­ins.

Stjórnvaldi skylt að auglýsa lausar stöður


Í athuga­semdum BHM er sömu­leiðis gagn­rýnd sú breyt­ing sem frum­varp for­sæt­is­ráð­herra felur í sér, varð­andi útvíkkun heim­ildar til að flytja starfs­menn milli ráðu­neyta og stofn­anna án þess að aug­lýsa lausar stöður til umsóknar.

BHM bendir á að lögum sam­kvæmt sé meg­in­reglan sú að stjórn­valdi sé skylt að aug­lýsa allar lausar stöður, með ákveðnum und­an­tekn­ingum þó. Reglan byggi á jafn­ræð­is­sjón­ar­miðum um að veita öllum sem áhuga kunna að hafa tæki­færi til að sækja um opin­bera stöðu. Þá búi að baki regl­unni það sjón­ar­mið að með slíku fyr­ir­komu­lagi sé betur tryggt að ríkið eigi kost á sem flestum færum og hæfum umsækj­endum þegar ráðið sé í starf. Með frum­varp­inu sé verið að draga veru­lega úr þeim sjón­ar­miðum sem eru að baki aug­lýs­inga­skyldu stjórn­valds.

Eins og kunn­ugt er tók Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, ein­hliða ákvörðun í sumar um flutn­ing höf­uð­stöðva Fiski­stofu frá Hafn­ar­firði til Akur­eyrar. Áhöld eru um lög­mæti ákvörð­un­ar­innar, með hlið­sjón af núgild­andi lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands. Þá hefur Norð­vest­ur­nefndin svo­kall­aða lagt fram rót­tækar til­lögur meðal ann­ars um flutn­ing RARIK til Sauð­ár­króks og skipa­rekstur Land­helg­is­gæsl­unnar í Skaga­fjörð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár