Pæling dagins: Áhættudreifing Norðmanna gulls ígildi

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Í gær var á það bent að gengi bréfa í N1 hefði hækkað um ríf­lega 50 pró­sent frá því í júlí, og síðan til dags­ins í dag, sam­hliða verð­fall­inu á olíu á heims­mörk­uðum. Það er þó eðli­legt að halda því til haga, að ákveðið var að lækka hlutafé félags­ins um tæp­lega fjóra millj­arða króna í októ­ber, og greiða út til hlut­hafa, eins og Kjarninn greindi raunar ítar­lega frá. Í því sam­hengi er ekki óeðli­legt að mark­aðsvirðið hafi hækkað. Gagnvart almenn­ingi, sem kannski þekkir ekki þennan bak­grunn, kann það að skjóta skökku við að gengi bréfa félags­ins hækki mikið á sama tíma og miklar hremm­ingar herja á olíu­iðn­að­inn í heim­inum. Í Noregi hefur þetta sam­hengi verið nokkuð skýrt, enda olíu­iðn­að­ur­inn und­ir­stöðu­at­vinnu­vegur í land­inu. Hluta­bréf hafa fallið í land­inu að und­an­förnu, og í gær hrap­aði gengi norsku krón­unnar, um átta pró­sent gagn­vart evr­unni. Fyr­ir­hyggja Norð­manna þegar kemur að olíu­sjóðnum norska sannar sig ekki síst í stöðu sem þess­ari. Í gær, þegar gengi norsku krón­unnar féll gagn­vart erlendum myntum, þá hækk­uðu eignir olíu­sjóðs­ins um sam­bæri­legt hlut­fall mælt í norskum krónum. Þar sem um 95 pró­sent af eignum sjóðs­ins eru bundndar í erlendum eignum og erlendum myntum. Þetta er áhættu­dreif­ing sem væri ósk­andi að íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið byggi við. En það svo sann­ar­lega ekki raunin, í hafta­hag­kerf­inu.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár