Sakar stjórnvöld um áhugaleysi á félagslegu húsnæði fyrir tekjulága

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, telur líkur á því að til átaka komi á vinnu­mark­aði í vor hafa auk­ist eftir að fjár­lög árs­ins 2015 voru sam­þykkt á Alþingi seint í gær­kvöldi. Morg­un­blaðið greinir frá mál­inu á for­síðu blaðs­ins í dag.

Gylfi segir að í fjár­lög­unum birt­ist vilja­leysi stjórn­valda til að styðja upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis fyrir þá efna­minnstu.

Til að afstýra verk­föllum í vor telur for­seti ASÍ að tvennt þurfi að koma til. Að lægstu laun hækki mikið eða stjórn­völd styðji við upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis fyrir þá tekju­lægstu.

Ný könnun Eflingar, sem sýnir hátt hlut­fall lág­tekju­fólks á leigu­mark­aði, er vitn­is­burður um að margir í þeim hópi geti ekki látið enda ná saman, að mati Gylfa. Það sama gildi um nýjar tölur frá umboðs­manni skuld­ara, þar sem fram kemur að lág­tekju­fólk er í yfir­gnæf­andi meiri­hluta þeirra sem sótt hafa um greiðslu­að­lögun á árinu vegna ann­arra skulda en fast­eigna­skulda.

Forseti ASÍ gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina, í sam­tali við Morg­un­blaðið, fyrir að hafna þeirri leið að nið­ur­greiða vexti til að byggja upp félags­legt hús­næði. „Það þarf sem sagt annað hvort að hækka grunn­kaupið mjög mikið hjá þeim sem lægst hafa launin eða fara fram með sam­eig­in­lega kröfu um að aðild­ar­fé­lög ASÍ stofni hús­næð­is­stofnun.“ Þá úti­lokar Gylfi ekki að aðild­ar­fé­lög ASÍ muni beina þeirri kröfu til atvinnu­rek­enda að vand­inn verði leystur með sam­eig­in­legu átaki.

„Það er auð­vitað alveg ný nálgun að það verði gerð krafa á atvinnu­lífið um að leggja fé í hús­næð­is­sjóð á vegum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar,“ segir Gylfi Arn­björns­son í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár