Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Salzburg

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er 5.34 og ég er rauð­víns­fullur. Ég ligg í koj­unni minni í síð­asta skipti á þessum túr og bíð þess að rútan leggi í hann. Áætluð brott­för er klukkan sex.

Þetta var síð­asti dag­ur­inn á túrnum. Við erum búnir að vera á flakki síðan í lok októ­ber og mér líður eins og ég hafi verið á Leifs­stöð í öðrum líf­tíma. Þetta hefur verið lengsti túr Skálmaldar frá upp­hafi, sá við­burða­rík­asti og sá sem hefur tekið mest á. Ég er senni­lega jafn glaður yfir því að nú séum við á heim­leið og yfir því hversu stór­kost­leg sig­ur­gangan hefur verið. Þetta er jafn­framt síð­asta blogg­færsan sem ég geri og ég játa að því er ég feg­inn. Yfir­leitt hefur verið fremur auð­velt að berja sirka þús­und orð niður eftir hvern dag en þetta tekur í. Vonandi get ég lesið yfir þetta í ell­inni og glaðst, en ég sé ekki fyrir mér að ég bloggi meira í nán­ustu fram­tíð. Ef ég fer ekki með rangt mál voru þetta 38 tón­leikar sem ætti að þýða að ég hafi sett niður tæp­lega 40.000 orð. Ég ætti mögu­lega að hætta þessum afsök­unum og skrifa eitt­hvað af þessum sögum sem ég er með í höfð­inu niður á blað.

Ég rumskaði klukkan ell­efu og þá með dúndr­andi höf­uð­verk. Sá var alger­lega sjálf­skap­aður því ég sofn­aði allt annað en alls­gáður. Ég keyrði mig þá niður í kodd­ann og náði að hvíla mig til tvö við alls­konar mis­gáfu­legar draum­farir. Þá hopp­aði ég niður úr koj­unni, tók mið á tón­leika­stað­inn og reyndi að finna kló­sett. Það gekk ekki betur en svo að ég end­aði með að læsa mig inni á ein­hverjum lyft­u­gangi og þurfti að banka mjög svo sneypu­legur á dyrnar til að kom­ast til baka. Ég upp­skar svo­lítið af glottum frá sam­ferða­mönnum mínum. Ég piss­aði þó sem betur fer ekki á mig.

[caption id="attachment_14685" align="alignnone" width="3264"] Bibbi sést hér, að huga að inter­net­inu í sím­anum. Já eða skrifa sms.[/caption]

Slurkur af strák­unum hafði farið niður í bæ. Við hinir söfn­uð­umst saman á tón­leika­staðnum, í ein­hverju bak­ver­elsi sem var ekki upp á marga fiska. Mann­skap­ur­inn safn­að­ist svo saman og við áttum sánd­tékk. Það var svo sem venju­legt nema hvað við þurftum að gera ráð fyrir öllum hinum sveit­unum sem spil­uðu með okkur í dag. Jábbs, 13 banda festi­val skyldi það vera. Reyndar var spilað á tveimur sviðum og því ekki með þrjú bönd á undan okkur á stóra svið­inu, en það þýddi engu að síður að við þurftum að gera ráð fyrir þeim sem á undan komu. Lítið mál svo sem og við kláruðum okkar eins og venju­lega.

Eftir tékk röltum við allir rak­leiðis niður í bæ, Skálmöldin, Flex og Robert. Við átt­menn­ingar fundum okkur ind­verskan mat­sölu­stað þar sem við áttum alveg sér­lega nota­lega stund og fengum gríð­ar­lega góðan mat. Við höfðum jafn­vel tíma eftir að til að fara á kaffi­hús, sviðs­tím­inn á okkur var óvenju síð­bú­inn vegna allra lókal­band­anna, klukkan 20.40. Við röltum svo bara upp­eftir og gerðum okkur klára.

Það var hugur í okkur fyrir þetta gigg. Allir ger­sam­lega frá­vita af lang­þreytu og heim­þrá en sem fyrr alger­lega stað­ráðnir í að skilja sviðið eftir í ljósum logum. Og það gerðum við. Svo sannar-fokk­ing-lega. Ég ætla að láta vera að fara út í smá­at­riðin en aust­ur­rískur mos­hpyttur er eitt­hvað sem ég hef ekki séð fyrr. Þetta var full­kom­lega frá­bær enda­hnútur á frá­bært ferða­lag.

Við kvöddum krakk­ana snemma því hinar rút­urnar tvær yfir­gáfu stað­inn strax eftir gigg. Sum­staðar voru tár á hvarmi, en við­skiln­að­ur­inn við Rússana var vissu­lega erf­ið­ari en við Elu­veitie. Þau hittum við jú aftur í febr­úar fyrir tveggja vikna túr­inn sem framundan er. Þetta eru allt saman gull­fal­legir krakkar og svona við kveðju­stund­ina losn­aði um alls­konar hömlur sem voru fyrir okkur allan túr­inn. Mig grunar að það verði stór­kost­lega gaman að hitta þau aftur eftir nokkrar vikur.

Og svo fóru þau öll og við einir eftir á plan­inu. Nei, reyndar ekki. Anton, hljóð­maður og umboðs­maður Arkona býr í Prag. Rútan okkar er leigð þaðan og þaðan er Robert. Hann fær því að fljóta með okkur. Okkar stopp er München hvaðan við tökum flugið heim. Anton og Robert halda svo áfram til Prag. Við vöktum mis­lengi en við Anton lang­lengst. Hann er núna hrjót­andi í koj­unni gengt mér, koj­unni sem hefur verið laus allan túr­inn. Vinir mínir og félagar sofa allt í kringum mig en Robert er vakn­aður. Tjaldið er dregið fyrir koju­opið mitt en ég heyri að hann er að mala sér kaffi. Síðasti spott­inn er framundan, kannski 200 kíló­metrar og þaðan tökum við flugið. Jebbs, þetta er búið.

Þetta hafa verið ótrú­legar vikur. Álagið hefur aldrei verið meira en sigr­arnir heldur aldrei stærri. Ég játa á mig alveg stór­kost­lega þreytu og ég veit að sam­ferð­ar­menn mínir eru alger­lega sam­mála. Eftir rétta 10 tíma ætla ég í sturtu heima hjá mér og eftir það kviknakinn í sófann minn. Og þar ætla ég að vera í eins og viku. Ég reyndar lýg því því að strax á mánu­dags­morgun ætla ég að rífa mig upp á rass­inum og fara í sónar. Eða kannski öllu heldur með Agnesi í sónar. Bjór­bumban á mér myndi nú svo sem örugg­lega þola sónar, en þetta verður örugg­lega meira gaman svona.

Þetta ferða­lag breytti lífi mínu, svo ein­falt er það. Draum­ur­inn stækkar hratt, og raunar miklu hraðar en ég hefði nokkurn tím­ann þorað að vona. Skálmöld er ótrú­legt fyr­ir­bæri sem knúið er áfram af stór­kost­legri stað­festu þessa hóps sem hér hrýtur kringum mig. Hér fórna menn hlutum fyrir þessar sakir og eng­inn efast. Ef allt saman klár­ast á morgun veit ég að ég hef í það minnsta minn­ingar til að hlýja mér við í ell­inni.

Það er við hæfi að rútan keyri nú af stað í síð­asta sinn þar sem ég lýk færsl­unni. Ég næ að leggja mig í rúma tvo tíma áður en við svo trillum dót­inu okkar inn á flug­stöð­ina. Heima bíður mín frí, jól á Húsavík hjá mömmu minni og auð­vitað ótta­blandin gleði með ólétt­unni.

Þetta eru mín síð­ustu orð frá Evrópu-túr Skálmaldar 2014. Takk öll þið sem nenntuð að lesa þetta rant mitt og þola allar heims­ins til­finn­ingar. Meist­ara­snill­ing­unum á Kjarn­anum flyt ég mínar bestu þakkir, kveðjur og óskir um allt sem gott er, því þeir hafa gert okkur litla bróður lífið óskap­lega mikið auð­veld­ara með umsýslu á þessum færslum okkar. Takk.

Ég ætla að leggja mig. Ég á það skilið.

SR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár