Gagn sem MS upplýsti Samkeppniseftirlitið ekki um veldur uppnámi

Áður óþekktur samn­ingur milli Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga (KS), sem MS byggði mál­flutn­ing sinn á fyrir áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, hefur nú leitt til þess að nefndin hefur falið Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu að rann­saka nánar verð­lagn­ingu MS á hrá­mjólk til ann­ars vegar tengdra fyr­ir­tækja og hins vegar keppi­nauta sam­stæð­unnar. Þetta kemur fram í tillkynn­ingu á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Áfrýj­un­ar­nefndin hefur því fellt úr gildi úrskurð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá því í októ­ber, sem sektaði MS í lok sept­em­ber um 370 millj­ónir króna vegna alvar­legra sam­keppn­islaga­brota.

Létu ekki vita af samningnum við rannsókn málsins


Að mati áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar er þetta nauð­syn­legt þar sem MS lét, við með­ferð máls­ins fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa stofn­un­ina um áður óþekktan samn­ing við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga. Að mati nefnd­ar­innar komu ekki fram full­nægj­andi skýr­ingar af hálfu MS á fram­kvæmd samn­ings­ins fyrir nefnd­inni.

Í ákvörðun sinni taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið að MS hefði með ólög­mætum hætti mis­munað Mjólk­ur­bú­inu Kú, áður Mjólku, á meðan hún var í eigu fyrri eig­anda, með því að selja fyr­ir­tæk­inu óger­il­sneydda hrá­mjólk á allt að 17 pró­sent hærra verði en gilti gagn­vart tengdum aðilum, það er Kaup­fé­lagi Skag­firð­ing a og síðan Mjólku eftir að KS eign­að­ist félagið. Var þessi mis­munun til þess fallin að veikja Mjólku sem keppi­naut MS og tengdra félaga.

Viðurlög við því að halda upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu


MS lagði í fyrsta sinn fram til­tekið gagn fyrir áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, samn­ing við KS frá 15. júlí 2008. Við rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafði MS aldrei vísað eða greint stofn­un­inni frá umræddum samn­ingi, þrátt fyrir að hún hefði ítrekað óskað eftir skýr­ingum og gögnum frá MS vegna umræddrar verð­lagn­ingar. Í úrskurði áfrýj­un­ar­nefnar segir vegna þessa:

„Þótt ekki hafi komið hald­bærar skýr­ingar á því hjá áfrýj­anda hvers vegna bæði samn­ing­ur­inn hafi ekki verið lagður fram við með­ferð máls­ins hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu né grund­vall­ar­gögn um efndir hans og upp­gjör hjá áfrýj­un­ar­nefnd­inni telur nefndin sér skylt á grund­velli rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­réttar að koma mál­inu í þann far­veg að upp­lýst sé um þessi atriði. Við munn­legan mál­flutn­ing skýrð­ist málið ekki frekar að þessu leyti. Við svo búið telur áfrýj­un­ar­nefndin sér ekki unnt að taka efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Verður því ekki kom­ist hjá því að ógilda hinn kærða úrskurð Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og leggja fyrir eft­ir­litið að taka á ný afstöðu til máls­ins að und­an­geng­inni frek­ari rann­sókn og að fengnum sjón­ar­miðum er varða þýð­ingu samn­ings­ins á milli áfrýj­anda og KS frá 15. júlí 2008, upp­gjöri á milli aðila hans og efndum á því tíma­bili sem meint brota­starf­semi stóð yfir.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið mun nú í sam­ræmi við úrskurð áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar, taka málið aftur til með­ferðar. Þá mun stofn­unin sömu­leiðis rann­saka af hverju umræddur samn­ingur var ekki lagður fyrir eft­ir­litið við rann­sókn máls­ins, en við­ur­lög geta legið við því að halda upp­lýs­ingum frá eft­ir­lit­inu við rann­sókn máls.

„Áfangasigur fyrir Mjólkursamsöluna“


Í frétta­til­kynn­ingu sem MS sendi fjöl­miðlum nú undir kvöld, fagnar fyr­ir­tækið nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­nefnar sam­keppn­is­mála „Þetta er vissu­lega áfanga­sigur. Málið telst ekki rann­sakað til þeirrar nið­ur­stöðu sem kynnt var og 370 millj­óna króna sektin verður nú end­ur­greidd félag­inu,“ er haft eftir Einari Sig­urðs­syni, for­stjóra MS í til­kynn­ing­unni.

„Áfrýj­un­ar­nefndin bendir á að sam­starfs­samn­ingur Mjólk­ur­sam­söl­unnar og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga hafi ekki komið fram sem gagn í mál­inu fyrr en á í áfrýj­un­ar­ferli og að ekki hafi farið fram nægj­an­leg rann­sókn á því hvernig fyr­ir­tækin unnu á grund­velli hans. Mjólk­ur­sam­salan áréttar að fyr­ir­tækið veitti á öllum stigum máls­ins upp­lýs­ingar um efni sam­starfs­ins og eðli þess sem byggði á þessum samn­ingi. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála telur samt að þurft hefði að kanna málið betur og vísar því til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mjólk­ur­sam­salan mun kapp­kosta að veita sem ítar­leg­astar upp­lýs­ingar í þeirri skoðnum og telur að þeirri rann­sókn lok­inni verði sýnt verði fyr­ir­tækið hafi ekki brotið sam­keppn­is­lög,“ segir for­stjóri MS í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár