Vegagerðin í hundruð milljóna viðskiptum við ættingja starfsmanna

Vega­gerðin hefur átt í við­skiptum við ætt­ingja starfs­manna, fyrrum starfs­menn og jafn­vel þá starfs­menn­ina sjálfa. Um er að ræða hund­ruð millj­óna króna við­skipti við bróður deild­ar­stjóra hjá Vega­gerð­inni, hund­ruð millj­óna króna verk­töku fyrrum starfs­manns Vega­gerð­ar­innar fyrir hana og kaup á ræst­ingum fyrir úti­búi Vega­gerð­ar­innar í Hafn­ar­firði af fyr­ir­tæki í eigu deild­ar­stjóra þess og eig­in­konu hans. Kastljós greindi frá þessu í ítar­legri umfjöllun í kvöld.

Mörg hundruð milljona viðskipti við bróður deildarstjóra


Kastljós skoð­aði nokkur til­felli þar sem við­skipti Vega­gerð­ar­innar, ein stærsta stofnun rík­is­ins, þóttu orka tví­mælis. Fyrsta til­fellið voru við­skipti við fyr­ir­tækin Samrás og Fjarorku, sem Vega­gerðin hefur átt í við­skiptum við fyrir um 400 millj­ónir króna á und­an­förnum árum. Samrás fæst við verk­fræði­ráð­gjöf og Fjarorka selur tækja­búnað. Ekkert þeirra verka sem fyr­ir­tækin tvö unnu fyrir Vega­gerð­ina voru boðin út og sam­kvæmt Kast­ljósi eru engin eru til staðar sem benda til að óform­legar verðkann­anir liggi að baki neinu þeirra.

Guð­laugur Jónasson er eini eig­andi Samrásar og á helm­ing í Fjarorku. Hann er bróðir Nicolai Jón­as­sonar, deild­ar­stjóra þjón­ustu­deildar Vega­gerð­ar­innar. Við­skipti Vega­gerð­ar­innar við Samrás og Fjarorku hafa öll farið fram í gegnum deild­ina sem Nicolai stýrir.

Í Kast­ljósi kom fram að sam­kvæmt lögum um opin­ber inn­kaup eigi að bjóða út öll vöru­kaup yfir 11,5 millj­ónum króna. Sum við­skiptin við fyr­ir­tæki Guðlaugs eru langt yfir þeim mörkum. Auk þess leggja stjórn­sýslu­lög og siða­reglur Vega­gerð­ar­innar bann við því að opin­berir starfs­menn komi að við­skiptum við ætt­ingja sína.

Fyrrum starfsmenn og eiginkonur


Annað til­fellið snýr að kaupum Vega­gerð­ar­innar á verk­taka­þjón­ustu af fyr­ir­tæk­inu Hnjóti hf. Það fyr­ir­tæki var lengi í eigu Magnúsar Guð­bjarts­sonar, sem er fyrrum starfs­maður Vega­gerð­ar­innar. Hann er ekki lengur skráður eig­andi Hnjóts en kemur fram sem tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins í sam­skiptum þess við Vega­gerð­ina. Í umfjöllun Kast­ljóss kom fram að Magnús og þrjú fyr­ir­tæki honum tengd, meðal ann­ars Hnjótur, hafi fengið alls 205 millj­ónir króna fyrir ýmis verk sem unnin voru að beiðni fyrrum sam­starfs­manna hans á und­an­förnum árum.

Þriðja til­fellið snýst um kaup úti­bús Vega­gerð­ar­innar í Hafn­ar­firði á ræst­ing­ar­þjón­ustu af fyr­ir­tæki í eigu Bjarna Stef­áns­sonar og eig­in­konu hans fyrir alls um tíu millj­ónir króna á und­an­förnum árum. Bjarni er deild­ar­stjóri úti­bús­ins. Hann hafði sjálfur umsjón með kaupum á ræst­ing­ar­þjón­ust­unni og stýrði meðal ann­ars útboði á þjón­ust­unni þar sem mót­bjóð­andi sendi til­boð sitt meðal ann­ars beint á Bjarna.

Í Kast­ljósi sagði að sam­kvæmt gögnum sem það hefur undir hönd­unum um þessi til­felli sé „erfitt að sjá að við­skiptin sam­rým­ist þeim reglum sem Vega­gerðin hefur sjálf sett sér, auk þess sem eðli­legt er að spurt sé hvort þessi við­skipti, sem sam­tals nema á sjö­unda hund­rað millj­óna króna, sam­ræm­ist lögum“.

Í við­tali við Kastljós sagði Vega­mála­stjóri að vel geti verið að lög hafi verið brotin í við­skipt­unum sem voru til umfjöll­unar og að fullt til­efni sé til að fara betur yfir þau.

Vega­gerðin hefur skipað starfs­hóp til að fara yfir við­skipti Vega­gerð­ar­innar við ofan­greinda aðila í kjöl­far við­tals­ins sem Kastljós tók við Vega­mála­stjóra . Við­skiptum ræst­inga­fyr­ir­tæk­is­ins sem Bjarni Stef­áns­son og eig­in­kona hans eiga við Vega­gerð­ina hefur verið hætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár