Erlendur og atómstöðin

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Arnaldur Ind­riða­son

Kamp Knox

Útgef­andi: Vaka-Helga­fell

Einn stærsti styrkur Arnaldar Ind­riða­sonar hefur mér sýnst vera fund­vísi hans á sögu­svið og snertifleti sam­fé­lags­ins og Íslands­sög­unnar við bjástur lög­reglu­kvar­tetts­ins Erlendar, Elín­borgar, Sigurðar Óla og Marion. Á þessum flötum verður oft til orka sem drífur vagn­inn þegar glæpa­málin sjálf og spennan í kringum þau eru í dauf­ara lagi, eins og færst hefur heldur í aukanna eftir því sem liðið hefur á sagna­bálk­inn. Sem engan skyldi undra.

Íslensk erfða­grein­ing. Einvígi ald­ar­innar. Kalda­stríðsnjó­snir. Hernámið og bygg­ing Þjóð­leik­húss­ins. Lífskjör úti­gangs­manna í Reykja­vík. Allt hefur þetta dýpkað og breikkað bækur Arnaldar.

Og nú er það her­stöðin á Mið­nes­heiði og kjarn­orkuógnin. Bragga­lífið. Já og upp­runi Bláa lóns­ins.

Sviðið er Reykja­vík og Reykja­nesskagi 1979. Erlendur er kom­inn í rann­sókn­ar­lög­regl­una og fæst undir hand­leiðslu Marion Briem við morð á flug­virkj­anum Krist­vini sem psori­as­is­sjúk­lingur finnur í lón­inu við Svarts­engi. Jafn­framt er hann að graf­ast fyrir um orsakir manns­hvarfs frá eft­ir­stríðs­ár­unum sem teng­ist, eða ekki, hinu sögu­fræga/ill­ræmda bragga­hverfi sem bókin dregur nafn sitt af.

Kunn­ug­legt, ekki satt?

Þetta er að mestu aldeilis dæmi­gerður Erlendar- og Arn­ald­ar­krimmi. Hinn grámyglu­legi og félags­fælni spæj­ari með næma eyrað er eins og hann á að sér. Atburða­rásin rót­föst í raun­veru­leik­anum þó tengsl hennar og rann­sókn­ar­innar við kjarn­orku­bröltið gefi henni smá lyft­ingu.

Ég held samt að les­endur þurfi að vera ein­beittir aðdá­endur til að njóta Kamp Knox að veru­legu ráði. Það eru þreytu­merki í fléttu­smíð­inni, finnst mér. Lopa­teygjur í frá­sögn­inni. Þó það séu vita­skuld örlög fram­halds­sögu­smiða að þurfa sífellt að end­ur­taka sig til að full­nægja þeim sem eru að koma nýir að sög­unni þá er manns­hvarfa­þrá­hyggju Erlendar gerð full-ítar­leg skil hér fyrir minn smekk.

Og eru ekki skoð­ana­skiptin um her­stöðv­ar­málið, sem eru þónokkur í bók­inni, óþarf­lega inni­halds­rýr? Já og myndin af kön­unum dauf. AC/DC-plakatið á vegg eins rauð­háls­ins gladdi mig reyndar, þó strand­högg þeirra Ástrala í Vest­ur­heimi hafi verið á byrj­un­ar­reit ‘79. Hefði giskað á Lynyrd Skynyrd eða Creedance frekar. Skrítið smá­at­riði sem kætir mann frekar en pirrar.

Stíllinn er að vanda áreynslu- og stæla­laus, en ég hef nú séð höf­unda skammaða fyrir bók­máls­legt mál­snið á sam­tölum fyrir minni sakir en Arnaldur lætur eftir sér hér.

Og hvað er þetta með kynið á Marion Briem? Reyndar skilst mér að í ein­hverri fyrstu bókanna þar sem Marion kemur við sögu missi Arnaldur út úr sér kyn­grein­andi beyg­ingu eða per­sónu­for­nafn, en það er til marks um hvað mér er mikið sama að ég nenni ekki fyrir mitt litla líf að leita það uppi.

Kamp Knox er ágætis inn­legg í fram­halds­sög­una um Erlend. Bætir engu við og er ein og sér heldur rislágur krimmi. Ekki byrja á þess­ari ef þið eruð ókunnug Arnaldi. En, kæru aðdá­endur, þetta er alveg eftir upp­skrift­inni. Örugg­lega nóg til frammi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár