Meirihluti umsækjenda hjá umboðsmanni skuldara eru leigjendur

Um 440 manns hafa sótt um greiðslu­að­lögun hjá umboðs­manni skuld­ara það sem af er ári, en mik­ill meiri­hluti þeirra eru leigj­endur í greiðslu­vanda vegna skulda ann­arra en fast­eigna­skulda. Þannig eru um 320 þess­ara umsækj­enda ekki með fast­eigna­lán. Skulda­vandi þeirra er því til­kom­inn vegna ann­ars konar lána og skuld­bind­inga, svo sem kredit­korta­lána, bíla­lána og náms­lána. Morg­un­blaðið greinir frá mál­inu í dag.

Morg­un­blaðið hefur eftir Svan­borgu Sig­mars­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa umboðs­manns skuld­ara, að 80 pró­sent umsækj­enda séu búsett á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum. Tæplega 41 pró­sent umsækj­enda býr í Reykja­vík, en leigu­verð er hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þá fer greiðslu­geta umsækj­enda minnk­andi, en hún hefur aðeins verið um 12.500 krónur á mán­uði að með­al­tal á þessu ári. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Svanborg það hluta skýr­ing­ar­innar á minnk­andi greiðslu­getu að leigj­endum sé að fjölga. Þá fari leigu­verð hækk­andi og vegna þess að leigan er inni í föstum útgjöldum en ekki afborg­anir af lánum, komi hætti leiga fram sem skert greiðslu­geta. Þá séu tekjur fólks sömu­leiðis að lækka.

„Þá hefur yngri hópur komið til okkar á þessu ári en áður, oft­ast er fólk komið í vanda vegna þess að tekjur duga ekki til að endar nái saman. Á nokkrum árum getur mynd­ast skulda­hali. Það er alveg sama hversu oft skuld­irnar eru gefnar eftir, sumir umsækj­endur munu ekki ná endum saman. Við erum að sjá ákveð­inn tekju­vanda hjá fólki sem hefur ekki tekjur fyrir fram­færslu. Við tökum saman allar tekjur og berum saman fram­færslu­við­miðin okkar og reikn­inga sem fólk þarf að borga. Það er alltaf að hækka hlut­fallið sem leitar til okkar með nei­kvæða greiðslu­getu. Þeir ein­stak­lingar hafa ekki tekjur til þess að ná endum saman miðað við fjöl­skyldu­stærð og lenda því í þessum skulda­vanda,“ segir Svanborg Sig­mars­dóttir í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár