Heiða Kristín Helgadóttir hætt í stjórnmálum

Heiða Kristín Helga­dóttir mun hætta sem stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar og hætta afskiptum af stjórn­málum um sinn í upp­hafi næsta árs. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hún birti á Facebook rétt í þessu.

Heiða Kristín kom að stofnun Besta flokks­ins fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2010 og síðar Bjartrar fram­tíðar. Hún var um tíma aðstoð­ar­maður Jóns Gnarr borg­ar­stjóra, fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Besta flokks­ins, vara­for­maður Besta flokks­ins, stjórn­ar­for­maður og fram­kvæmda­stjóri Bjartrar fram­tíðar. Hún bauð sig fram fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum en náði ekki kjöri. Hún er vara­þing­maður flokks­ins í dag.

Hún hefur verið á meðal áhrifa­mestu kvenna í íslenskum stjórn­málum und­an­farin ár.

Yfirlýsing Heiðu Kristínar:


„Á síð­ast­liðnum fimm árum hef ég átt þeirri gæfu að fagna að eiga stóran þátt í því að búa til tvo stönduga stjórn­mála­flokka, Besta flokk­inn og Bjarta fram­tíð, og þannig stuðlað að tíma­bærum breyt­ingum sem ég vona inni­lega að munu hafa jákvæð áhrif til lengri tíma. Á þessum tíma­punkti finnst mér rétt að sleppa tak­inu, hleypa öðrum að og freista þess að hafa áhrif á sam­fé­lagið með öðrum hætti. Ég hef tekið ákvörðun um að láta af stjórn­ar­for­mennsku í Bjartri fram­tíð í upp­hafi nýs árs og hvíla dag­leg afskipti af stjórn­málum um sinn.

Ég er sátt og stolt af því sem ég hef áorkað, en á sama tíma með­vituð um að þörfin fyrir að opna sam­fé­lagið upp og færa það nær nútím­anum er ótví­ræð. Ég hlakka til að takast á við það verk­efni frá nýjum sjón­ar­hól á kom­andi árum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár