Ætla að reka verksmiðjur á svartolíu frekar en rafmagni til að spara

Fiski­mjöls­verk­smiðjur munu, að minnsta kosti margar hverjar, brenna olíu í vetur frekar en að nota raf­magn til að starf­rækja starf­semi sína. Ástæðan er verð­hækkun Lands­virkj­unar á ótryggðri orku og fallandi heims­mark­aðs­verð á olíu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Mun umhverf­is­vænna er að not­ast við raf­magn til að reka verk­smiðj­urnar en svartolíu.

Þar segir að flestar fiski­mjöls­verk­smiðjur lands­ins hafi verið raf­væddar að hluta eða öllu leyti með til­heyr­andi kostn­aði. Blaðið segir að for­sendur fjár­fest­ing­anna hafi í flestum til­vikum verið „að hægt yrði að kaupa ótryggða orku á hag­kvæmu verði og því hefur olíu­kötl­unum verið haldið við þannig að hægt væri að grípa til þeirra ef raf­magn hefur verið skammtað“.

Að und­an­förnu hafa mörg fyr­ir­tækin end­ur­samið um orku­kaup við dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki og þá hafa taxt­arnir hækkað veru­lega. Friðrik Már Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Loðnu­vinnsl­unnar á Fáskrúðs­firði, segir við Morg­un­blaðið að „eins og staðan er núna munum við brenna olíu í vetur í stað þess að kaupa raf­magn“. Ástæðan sé sú að raf­orka verði ekki sam­keppn­især við olíu í verði. Páll Snorra­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs Eskju á Eski­firði, segir að um þessar mundir sé hægt að festa sér olíu á hag­kvæmu verði til notk­unar út árið.

Félag íslenskra fiski­mjöls­fram­leið­enda hefur óskað eftir fundi með Lands­virkjun í þess­ari viku til að fá skýr­ingar á verð­hækk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár