Forstjóri LHG opinn fyrir flutningi skipareksturs til Skagafjarðar

Land­helg­is­gæslan er opin fyrir því að skoða til­lögur Norð­vest­ur­nefndar rík­is­stjórn­ar­innar, um flutn­ing skipa­rekst­urs gæsl­unnar til Skaga­fjarðar. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Land­helg­is­gæsl­unnar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í sjón­varps­fréttum RÚV í gær­kvöldi var sagt frá til­lögum Norð­vest­ur­nefnd­ar­innar svoköll­uðu, en sam­kvæmt frétt RÚV eru flutn­ingar RARIK á Sauð­ár­krók og skipa­rekstur Land­helg­is­gæsl­unnar í Skaga­fjörð á meðal hug­mynda nefnd­ar­innar. Kostn­aður við aðgerð­irnar er áætl­aður nema hund­ruðum millj­óna króna.

Norð­vest­ur­nefndin var skipuð fyrir til­stuðlan rík­is­stjórn­ar­innar í vor, til að vinna til­lögur um hvernig efla megi byggða­þróun, fjár­fest­ingar og fjölga atvinnu­tæki­færum á svæð­inu. Stefán Vagn Stef­áns­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Skaga­firði, er for­maður nefnd­ar­innar. Samkvæmt áður­nefndri frétt RÚV voru til­lögur nefnd­ar­innar kynntar á rík­is­stjórn­ar­fundi á föstu­dag.

Æskilegt að hafa skip fyrir norðan


Kjarninn leit­aði við­bragða Georgs Lár­us­sonar, for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar, við til­lögum Norð­vest­ur­nefnd­ar­innar. Í skrif­legu svari hans til Kjarnans segir for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar að hún sé opin fyrir því að skoða til­lögur nefnd­ar­innar. „Kallað hefur verið eftir því af okkar hálfu að Land­helg­is­gæslan geti haft góðan við­búnað til björg­unar og eft­ir­lits, bæði á landi og sjó, frá fleiri stöðum á land­inu. Frá því að þyrlur varn­ar­liðs­ins hurfu af land­inu hefur ítrekað komið til skoð­unar hvort mögu­legt væri að hafa öfl­uga björg­un­ar­þyrlu stað­setta á Norður- eða Aust­ur­landi sem brugð­ist gæti hraðar við hjálp­ar­beiðnum af svæðum þar í kring. Slíkt yrði þó að gera í sam­hengi við efl­ingu á núver­andi þyrlu­kosti sem fer að verða kom­inn til ára sinna.“

Þá kemur fram í svari for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar að gæslan hafi talið æski­legt að hafa skip til reiðu fyrir norðan land sem geti sinnt haf­svæð­unum í norð­vestri. „Varð­skipið Ægir hefur að mestu verið gert út frá Norð­ur­landi und­an­farin miss­eri. Það liggur nú við höfn á Akureyri en hefur einnig nýtt hafn­ar­að­stöð­una á Sauð­ár­króki stóran hluta árs­ins. Á Norð­ur­landi er góð aðstaða og mikil reynsla í þjón­ustu við skip og það hefur reynst hag­kvæmur kostur fyrir Land­helg­is­gæsl­una að nýta þá þjón­ustu sem þarna er í tengslum við stað­bundin verk­efni.“

Að end­ingu segir í svari for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unnar við fyr­ir­spurn Kjarnans: „Fyr­ir­sjá­an­leg aukin áhersla á norð­ur­slóðir hefur reglu­lega vakið upp umræðu um nauð­syn fram­tíð­ar­stefnu­mót­unar um gæslu Íslend­inga á þessum svæðum. Bæði um hvernig við gætum betur stórrar land­helgi okkar í norðri og einnig með hvaða hætti við getum tekið þátt í sam­starfi margra þjóða um þær slóðir sem eru að opn­ast norður af land­inu. Öflug hafn­ar­að­staða á Norð­ur­landi sem liggur vel við öðrum sam­göngum getur verið mik­il­væg fyrir fram­tíð­ina, sem og núver­andi verk­efni Land­helg­is­gæsl­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár