Prins Póló fjölskyldan undirbýr jólahátíðina í kafaldsbyl í Berufirði

Mikið fár­viðri geysar nú á Aust­fjörðum. Af því til­efni hafði Kjarninn sam­band við tón­list­ar­kon­una Berg­lindi Häsler, sem býr ásamt eig­in­manni sínum Svavari Pétri Eysteins­syni, betur þekktur sem Prins Póló, og þremur börnum í hálf­gerðri ein­angrun á sveita­bænum Karls­stöðum í Berufirði.

„Það byrj­aði að hvessa snemma í morgun og ég vakn­aði við það að svefn­her­berg­is­hurðin skellt­ist hressi­lega, sem mér þótti skrýtið enda áttu allir gluggar að vera lok­aðir,“ segir Berglind í sam­tali við Kjarnann. „Þegar ég kom inn í eld­hús þá stóð glugg­inn hrein­lega út og upp í loft. Þá var ekk­ert annað að gera en að bíða með kaffið og klæða sig í kraft­gall­ann, vopnuð hamri og nagla. Ég hef svo þurft að fara tvisvar út til að gera að glugg­anum síðan, en það er ágætt að þurfa að fara út öðru hvoru til að athuga hvort allt sé enn á sínum stað.“

[caption id="attachment_14481" align="aligncenter" width="2448"] Húsfrúin á Karls­stöðum gerir að glugg­anum sem fauk upp í nótt.[/caption]

Berglind segir veður á svæð­inu hafa versnað mikið upp úr hádegi. Þá hafi þak­plötur fokið af hlöðu á bæ í nágrenn­inu. „Miðað við spár lítur þetta þannig út að ung­ling­ur­inn verður áfram veð­ur­tepptur á Djúpa­vogi til morg­uns, að skóla­bíll­inn sem kemur vana­lega klukkan sjö á morgn­ana, komi ekki neitt og að seinkun verði á Prins­inum sem átti ann­ars að koma í fyrra­málið frá Reykja­vík. En svona er nú lífið í sveit­inni, það er við öllu að búast. En það er þá ekk­ert annað að gera en að huga að jólum, hita kakó og baka svo­lítið. Ég á það nú til að gera mjög lítið úr svona lög­uðu. Hef ósjaldan full­yrt að hér snjói ALDREI. Ég laug. Sorrí,“ segir Berglind í gam­an­sömum tón, og bætir við að ann­ars hafi vet­ur­inn verið mjög snjó­léttur á svæð­inu til þessa.

Standa í ströngu í Berufirði


Tón­list­ar­hjónin, sem jafn­framt fram­leiða Bulsur, fluttu á sveita­bæ­inn Karls­staði í Berufirði síð­ast­liðið vor ásamt þremur börnum, sem eru eins árs, fjög­urra ára og fimmtán. „Við erum að gera upp tæp­lega þús­und fer­metra af fast­eignum. Við erum meðal ann­ars að útbúa hér fram­leiðslu­eld­hús og að breyta gömlum bæ í gisti­heim­ili. Þá á að rækta hér græn­meti á ein­hverjum hekt­urum og svo erum við með 60 kindur. Og svo má ekki gleyma tón­list­inni enda bónd­inn vin­sæll um þessar mundir og er einmitt staddur í borg­inni þessa helgi við tón­leika­hald. Ég spila í hljóm­sveit­inni Prins Póló og höldum við öll fjöl­skyldan suður í lok vik­unnar því við ætlum að halda tón­leika í Iðnó 19. des­em­ber. Vonum að það verði bara logn og nota­leg­heit þann dag­inn. Og svo ætlum við að flýta okkur heim aftur og halda okkar fyrstu jól í sveit­inni,“ segir Berglind.

[caption id="attachment_14482" align="aligncenter" width="2448"] Hús­bónd­inn og sjálfur Prins Póló gerir klárt fyrir jólin.[/caption]

Húsfrúin á Karls­stöðum segir að fyrsta sumar fjöl­skyld­unnar í Berufirði, hafi verið mjög eft­ir­minni­legt. „Síðasta sumar var alveg hreint dásam­legt. Hingað komu vinir og vanda­menn í stórum stíl, og sumir meira að segja alla leið frá Kanada, og allir lögðu hönd á plóg. Veturinn hefur alls ekki verið síðri. Í vetur höfum fengið til okkar sjálf­boða­liða frá ýmsum heims­hornum, erum líka með frá­bæra smiði hérna úr sveit­inni og góða nágranna svo það er ríf­andi gangur í þessu. Vinur okkar, tón­list­ar­mað­ur­inn Jónas Sig­urðs­son var líka hjá okkur hérna í byrjun des­em­ber og létti okkur vinn­una og lund­ina. Gisti­heim­ilið verður opnað í sumar og pant­anir eru strax farnar að ber­ast. Það er ótrú­lega gaman hvað fólk er áhuga­samt um þetta ævin­týri. Það hvetur okkur áfram.“

En hvernig líður fjöl­skyldu úr Reykja­vík í skamm­deg­inu og ein­ver­unni í Berufirði? „Margir spyrja hvernig vet­ur­inn fari með okkur. Það er auð­vitað fjandi dimmt. En það er svo skrýtið að ég hef sjaldan fundið fyrir jafn litlu skamm­deg­is­þung­lyndi og núna. Ég skil það ekki alveg, kannski er það nálægðin við nátt­úr­una. Ég virð­ist fá orku ein­hvers­staðar ann­ars­staðar frá.“

[caption id="attachment_14483" align="aligncenter" width="3264"] Kl. 11:25. Sól­ar­upp­rás.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár