Björgunarsveit fylgdi barnshafandi konu til Akureyrar í nótt

Björg­un­ar­sveitin Dalvík fylgdi sjúkra­bif­reið með barns­haf­andi konu til Akur­eyrar frá Dalvík á fjórða tím­anum í nótt. Konunni var komið á sjúkra­húsið á Akureyri um klukkan hálf sjö í morgun. Á Egils­stöðum og í Hnífsdal var heil­brigð­is­starfs­fólk aðstoðað við að kom­ast í og úr vinnu. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg sendi fjöl­miðlum nú rétt í þessu.

Mikið óveður gengur nú yfir Norð­ur­land og Aust­firði og eru flestir vegir þar ófærir, ekk­ert ferða­veður er á þessum svæðum sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Vega­gerð­inni. Nú geysar norðan stormur og hríð eru um norð­aust­an­vert landið og á Aust­fjörðum. Á Suð­aust­ur­landi er búist við norð­vestan 28 til 32 metrum á sek­úndu og hættu­legum vind­hviðum, allt að sex­tíu metrum á sek­úndu.

Björg­un­ar­sveitir hafa verið kall­aðar út til að aðstoða öku­menn við Siglu­fjörð, í Náma­skarði, í Mikladal við Tálkna­fjörð, á Stein­gríms­fjarð­ar­heiði, við Fnjóska­dal, á Skaga­strand­ar­vegi, við Hvamms­tanga, norðan við Blönduós, við Reyn­is­fjall, við Hnausa, á Kleif­ar­heiði, og í Vík­ur­skarði. Þá fór björg­un­ar­sveitin á Hellu í nótt að sækja hóp ferða­fólks í Land­manna­laugar. Hópurinn var vel búinn, en snjó­bíl þurfti til að sækja hann.

Viðvör­um frá Veður­stof­unni:

Útlit fyr­ir norðan ill­viðri á öllu land­inu í dag, sunnu­dag, og ekk­ert ferða­veður. Fer að draga úr vindi vest­ast á land­inu seinnipart­inn. Veður­fræð­ing­ur Vega­gerðar­inn­ar seg­ir að bú­ast megi við vind­hviðum allt að 60 m/​s und­ir Vatna­jökli og á Aust­fjörðum ásamt ofan­komu og skafrenn­ingi.

Hægt er að fylgj­ast með lægð­inni, sem nú gengur yfir land, í „beinni“ hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár