Vilja sáttanefnd í læknadeilunni - „ríkisstjórnin ráðalaus“

Formenn stjórn­and­stöðu flokk­anna leggja til að skipuð verða sátta­nefnd í deilu stjórn­valda við lækna, um kaup og kjör. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu for­manna flokk­anna, Árna Páls Árna­sonar Sam­fylk­ingu, Guð­mundar Stein­gríms­sonar Bjartri fram­tíðar, Katrínar Jak­obs­dóttur Vinstri grænum og Birgittar Jóns­dóttur fyrir hönd Pírata.

„Lausn kjara­deilu rík­is­ins og lækna þolir enga bið. Ótal rann­sóknum, aðgerðum og sjúkra­húskomum hefur verið frestað, biðlistar hrann­ast upp og ein­stakir læknar segja upp störfum. Hertar verk­falls­að­gerðir eru boð­aðar eftir ára­mót. For­stjóri Land­spít­al­ans segir rétti­lega lausn deil­unnar vera mik­il­væg­asta verk­efni þjóð­ar­innar. Rík­is­stjórnin virð­ist ráð­laus í deil­unni. Brúa verður það bil sem er á milli afstöðu lækna og rík­is­ins. Lands­menn eiga heimt­ingu á því að stjórn­völd geri allt sem mögu­legt er að til að greiða fyrir lausn deil­unnar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Í yfir­lýs­ing­unni er vitnað til laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur, þar sem rík­is­stjórnin getur blandað sér í deilur sem geta haft mjög alvar­legar afleið­ingar með skipan sátta­nefndar í sam­ráði við rík­is­sátta­semj­ara og deilu­að­ila.

„Við for­menn Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Bjartrar fram­tíðar og Pírata hvetjum rík­is­stjórn­ina til að hug­leiða beit­ingu þessa úrræðis og ræða við rík­is­sátta­semj­ara um hvort þessi leið geti auð­veldað það verk­efni að brúa bil milli aðila. Það er ekki hægt að sitja með hendur í skauti við þessar aðstæður,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár