Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Bratislava

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Ég fór bara að sofa gær. Eða nei svo sem ekki, en ég fór í koju. Þegar ég var búinn að horfa á fyrri bíó­mynd­ina þurfti ég ægi­lega að pissa. Klukkan var orðin þónokkuð margt og allir komnir í ró. Ég stökk í skóna og hlass­aði mér út á brók­inni. Ég komst ekki langt en kastaði af mér þarna undir grind­verk­inu. Að kom­ast svo að því að ég hefði læst mig úti var ekki góð til­finn­ing. Ég var alls ekk­ert tign­ar­legur þegar ég bank­aði á dyrnar á óreim­uðum Converse, Onyx-bol og skítugri brók úr H&M. Litli bróðir var sem betur fer ekki sof­andi, eða þá laust, og not­aði björg­un­ar­leið­ang­ur­inn til að fara sjálfur út að pissa. Ég horfði aðeins meira og sofn­aði svo.

Ég man óljóst eftir ósléttum vegi en ann­ars svaf ég vel, og það fram að hádegi. Þá var ég vak­inn af Robert því við vorum komnir. Auðvitað skiptir það venju­lega engu og við sofum fram­eftir enda þótt rúta komi á leið­ar­enda, en hér í Brat­islava er ekki hægt að leggja rút­unum nærri tón­leika­staðnum. Ræs, aftur í Converse, rusla dót­inu inn á stað­inn, taka tón­leikagall­ann með sér og horfa svo á eftir rút­unni út í tómið. Og allt þetta með stírur í augum.

Hér var ekk­ert spenn­andi að vera, það er að segja á tón­leika­staðnum sjálfum. Tón­leika­sal­ur­inn var svo sem ekki slæmur en öll aðstaða var til stakrar ófyr­ir­myndar. Við sáum það strax og afréðum að labba niður í bæ. Svilar höfðu þá reyndar látið sig hverfa þegar en við hinir fimm fikruðum okkur nið­ur­eftir. Það tók kannski gott korter á fæti í gegnum grá­mann. Já, þetta þykir mér frekar voða­leg borg. Alls­konar óskilj­an­leg mann­virki og skítug og sam­setn­ingar sem eru ljótar. Þetta skán­aði þó hell­ing þegar við náðum alla leið og hinn litli mið­bær er alveg sæmi­lega krútt­legur. Við ultum inn á mexíkóskan veit­inga­stað. Þar komumst við á net sem sagði okkur að hann fengi væg­ast sagt slæma dóma á Trip Advisor. En þá vorum við búnir að panta bjór­inn. Fokkitt, við pönt­uðum okkur rif, og sumir eitt­hvað annað. Mexíkósk rif með salsa. Pínu fyndin blanda en á end­anum voru allir hæstá­nægðir með mat­inn. Og þá var dag­ur­inn kom­inn af stað. Við röltum aðeins þarna um, skoð­uðum helstu torg og ána. Dóná, er það ekki? Nei nú verð ég að lesa mér til, þessi van­þekk­ing mín er orðin skammar- og átak­an­leg. Svo auð­vitað stytt­ist bara í sánd­tékk og við rétt náðum einum Irish Coffee í kuld­anum áður en við röltum til baka.

Sánd­tékkið var alls ekk­ert á réttum tíma. Rúss­arnir taka óskap­legan tíma í að koma sér fyrir og slógu senni­lega öll met í dag. Þetta hávaða­brask þeirra hvern ein­asta dag er farið að fara í taug­arnar á öllum og þau voru aðeins látin heyra það í dag. Gít­arsarg í klukku­tíma er ekki sánd­tékk. Það er ein­hverfa. Við afgreiddum okkar svo bara í snatri undir styrkri hand­leiðslu Flexa. Svo kom matur í svona dökk­gulum frauð­boxum. Það eru nú umbúðir sem drepa alla löngun til nær­ingar, en þetta slapp svo sem fyrir horn. Og svo var gigg.

[caption id="attachment_14456" align="alignnone" width="3264"] Og....fá sér![/caption]

Við höfum aldrei spilað hér áður og því voru áhorf­endur svo­lítið opin­mynntir. Þetta var alveg týpískt bar­áttugigg, við þurftu að byrja á því að sann­færa alla um að nú væri gaman og svo um að lífið væri frá­bært. Og það gerðum við vel, og senni­lega sjaldan betur. Við fengum alla með okkur. Þetta var alveg brjálað og Baldur vildi meina að við hefðum varla spilað betur á túrnum. Það er svona. Þrátt fyrir sex vikur af því sama, slark og voða, mis­jafna daga og þá heim­þrá sem nú er alls­ráð­andi skilum við alltaf giggum sem er betra en giggið í gær. Það er alveg magnað og ótrú­legt og gerir Skálmöld þessi virði að taka þátt. Aldrei slaka á!

Ég gat ekki verið þarna í hinu agn­arsmáa bak­her­bergi og braust gegnum fólkið til að kom­ast út. Þá strax stað­fest­ist það sem ég hafði fengið á til­finn­ing­una í dag. Hér er kúlt­úr­inn agressífur. Að mér veitt­ist fólk úr öllum áttum, ekki endi­lega til í að tala tungu­mál sem ég skildi en þeim mun meira sitt eigið. Það er svo sem gott og blessað, maður hittir á alls­konar tungu­mála­hindr­anir í þessu braski. En hér voru margir yfir­þyrm­andi og frekir. Sem dæmi er þetta í fyrsta skipti á okkar túr­sögu sem ég man eftir að því að hafa fengið skegg­kippi. Mitt síða skegg vekur oft athygli og sumir koma við án þess að fá form­legt leyfi. Gott og blessað. En hér tog­aði fólk. Og fleiri en einn og fleiri en tveir. Það fór ekk­ert mjög vel í mig. Ég hefði senni­lega átt að rífa í hárið á þeim á móti.

Þegar Arkona klár­uðu tókum við stutt mingl við fólk og auð­vitað voru lang­flestir afsakap­lega almenni­legir og skemmti­legir. En á þessu örl­aði, svona dólgs­hætti sem ég man eftir af íslenskum sveita­böllum örlí næntís. En já, slökum á pirr­ingnum, hér voru lang­flestir fal­legir, vit­an­lega. Meðan Elu­veitie spil­uðu sett­umst við á hlið­ar­pöbb á tón­leika­staðnum og drukkum alveg ein­stak­lega ódýran bjór, og ljóm­andi góðan. Robert og Flex höfðu stungið af á kaffi­hús eftir okkar gigg en sam­ein­uð­ust okkur þarna. Og svo var foosball. Í stuttu mál sigr­uðu svilar okkur bræður þrjú eitt. En það var fyrra ránd. Seinna rándið sigr­aði Robert alla hina með öllum stig­unum gegn blautum manna­skít. Ég vissi ekki að það væri hægt að vera svona góður í þessu. Hann á víst ein­hverja for­tíð sem hjálp­aði til við þetta, en fyrr má nú vera. Hann hló að okkur öllum.

Eftir að Elu kláraði fengum við pizzur að borða. Mjög kær­komið. Svo rusl­uðum við græj­unum okkar gegnum fólkið og út í bíl­inn sem Robert var þá nýbú­inn að sækja. Þá tók sami slag­ur­inn við, synda gegnum ókurt­eist og ofurölvi mann­haf sem meig utan í rút­una okkar og var með fyll­er­í­is­leið­indi. Ég var orð­inn svo pirr­aður eftir þetta allt að ég flúði inn í rútu og beint upp í koj­una mína. Og þar er ég núna. Við erum nýlagðir af stað og klukkan er 1.33. Við spilum í Aust­ur­ríki á og morgun og hinn og það eru tvö síð­ustu giggin á túrnum. Á morgun er það Vín. Þangað eru skitnir 80 kíló­metrar. Við erum samt stopp akkúrat núna svo kannski að ég hoppi fram úr, út, og pissi. Þeir eru að spila Kana þarna frammi. Æi, ég senni­lega held bara fýl­unni áfram og fer að sofa. Eða ekki.

Meist­ara­legt dags­ins: Frábært gigg.

Sköll dags­ins: Skeggtos.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár