Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Búdapest

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Þessi dagur var nú alger­lega tíð­inda­laus myndi ég segja. Ég vakn­aði sirka 14.00 og þá var sánd­tékk í nánd. Þá reyndar voru bæði Halli og Þrábi í bænum en komu með hraði. Við tékkum venju­lega miklu seinna en þetta en sökum þess að tvö auka­bönd spil­uðu í dag þurfti að flýta öllu. Það gekk svo bara að venju og lítið að frétta, fyrir utan lykt­ina. Ég veit ekki hvað er falið undir þessu sviði en það eru senni­lega lík. Mörg lík. Og þau eru á versta tíma rotn­unar. And­skot­ans óþefur og stækja. En þetta gekk svo auð­vitað bara.

Ég sem sagt fór ekki neitt í dag. Þeir fóru fjórir í bæinn eftir tékk, Halli, Jón, Flexi og Þrábi, en við urðum eftir í slak­anum. Ég held að ég hafi nú ekki gert neitt af viti. Við bara biðum. Lókal­böndin byrj­uðu reyndar mjög snemma og ég tékk­aði aðeins á þeim. Þau voru svo sem ekk­ert frá­bær. Fyrra bandið gladdi okkur hins­vegar alla en þá fyrir þær sakir að flokk­ur­inn er nefndur Kylfingar. Það er ógeðs­lega fyndið. Við höfðum ekki í okkur að segja þeim íslenska merk­ingu orðs­ins og svo kom reyndar í ljós að þeir eru taum­lausir Skálmaldar-aðdá­endur. Fínir krakkar aldeilis. Klukkan hálf8 skund­uðum við svo bara á svið og gerðum stykkin okkar. Og þau voru bæði stór og fal­leg. Við vorum hér í þriðja skipti á þessum stað og það leyndi sér alls ekki. Fullur salur af fólki sem var komið til að skemmta sér og gerði það frá fyrstu sek­úndu. Pyttur, hnefar, hár og bros. Við biðjum ekki um meira. Við lentum í kómískum tækni­vand­ræðum. Gítarinn hans Baldurs hljóm­aði svo­lítið eins og geim­skip í fyrstu lög­unum. Hann náði svo að tækla ves­enið þegar hann komst að því að græjan hans hafði van­stillst lítið eitt og ofan á hans hefð­bunda sánd lagð­ist effekt sem fram­leið­and­inn hefur kallað Ping Pong. Ógáfu­lega súpa það. Það hafði þó ekk­ert að segja og giggið var frá­bært frá upp­hafi til enda.

[caption id="attachment_14427" align="alignnone" width="3087"] Metall![/caption]

Ég hitti svo alveg fjölda fólks. Heima­fólk er skemmti­legt og vill spjalla. Margir höfðu séð okkur áður og nokkrir voru í bolum frá þeim tón­leikum. Mynda­tökur í hámarki, árit­anir hægri og vinstri og handa­bönd að rokk­arasið. Skemmti­legt en svo­lítið lýj­andi.

Ég tók til í dót­inu mínu áðan. Ég á sirka pass­legt magn af hreinum fötum til að lifa túr­inn af utan þess að ég er enn og aftur sokka­laus. Ég sit til dæmis í rút­unni núna og finn slepju­legan svit­ann nudd­ast innan í Converse-skóna. Ég veit ekki hvernig þetta stenst allt saman. Ég skipti vissu­lega um sokka dag­lega en ég trúi því ekki að þeir eigi allir að vera búnir. Ætli ég komi ekki heim á sunnu­dag­inn og upp­götvi eitt­hvað leyni­hólf með hreinum sokkum. Eða bara eitt­hvað. Þetta meikar ekk­ert sens.

Klukkan er 00.44 og sumir okkar í rútu. Nú dílum við við reglu­legt vanda­mál, við erum svangir. Þessi dagur féll ein­hvern­veg­inn þannig að við erum allir glor­hungr­aðir og það er þrúg­andi ástand þegar mag­arnir eru svona stórir og skapið jafn­vel enn stærra. Við maulum súkkulaði, drekkum bjór og blótum. Það verður áhuga­vert að sjá hvar þetta endar. Mér skilst að brott­för sé ekki fyrr en klukkan átta því það ku stutt yfir til Brat­islava hvar við spilum á morgun. Slóvakía. Þangað hef ég aldrei komið svo þar get ég krossað við.

Kló­settin hér voru með svona stalli. Ég lenti í því í dag að kúka mjög heil­brigðum kúk. Svona ster­eótýpískum dólgi sem hangir fal­lega saman og lítur vel út. Lítur vel út segi ég því ég gat svo sann­ar­lega virt hann fyrir mér þegar ég var stað­inn upp. Afköstin voru reyndar svo óskap­leg að ég þurfti að standa upp á meðan ég var að skila af mér því ég náði snert­ingu áður en allt hafði skilað sér. Frjáls­í­þrótta­lærin komu sér nú aldeilis vel þá og svo fann ég hann svona velta út á hlið og strjúkast við vinstri kinn­ina. Þetta er nú bara kjána­legt, og mikið verra. Kannski hefur fólk hér ekki jafn góðan melt­ing­ar­veg og ég sem alinn var upp á ýsu og slátri, en ef svo er vor­kenni ég þeim öllum. Svona þegar ég velti þessu fyrir mér gæti þetta skýrt ólykt­ina undan svið­inu. Heima­fólk velur sér senni­lega aðra staði en stallakló­settið til að kúka á.

Það stytt­ist. Þrjú gigg eftir. Heimferð á sunnu­dag­inn ef veð­ur­vættir lofa en nú hefur enn einu veðr­inu verði spáð. Ég fer örugg­lega að gráta ef flug­inu verður frestað. Og núna? Ég veit það ekki. Við verðum víst öll hér á plan­inu þar til í fyrra­málið. Sjáum til hvort ein­hver er í stuði. Og á jafn­vel mat.

Meist­ara­legt dag­ins: Kylfingar.

Sköll dags­ins: Hungur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár