Helgi Björns eini Íslendingurinn á topp 10 lista Spotify

Listi yfir tíu mest spil­uðu lögin hjá íslenskum not­endum Spotify þessa dag­ana inni­heldur aðeins einn íslenskan tón­list­ar­mann og jóla­há­tíðin setur veru­lega mark sitt á tón­list­ar­valið, það leynir sér ekki. Það er Helgi Björns­son, hinn eini sanni, sem kemst á list­ann með jóla­lagið vin­sæla Ef ég nenni. Það er í fjórða sæti list­ans, en næstur á eftir Helga af íslenskum tón­list­ar­mönnum kemur Laddi með lagið Snjókorn falla, en það er í ell­efta sæti.

Vin­sælasta lagið hjá íslenskum not­endum sam­kvæmt lista Spotify er lagið Take me to Church með írska tón­list­ar­mann­inum Hozier, Stay With Me með Sam Smith er í öðru sæti og All I Want for Christmas með Marihu Carey í þriðja sæti. Í fimmta sæti, á eftir Helga Björns er Its Beg­inn­ing To Look A lot Like Christmas með Michael Bublé, Im Not the Only One með Sam Smith í því sjötta, Uptown Funk með Mark Ronson í því sjö­unda, I Am an Albratoz með Aron Chupa í átunda, Chandelier með Siu í því níunda, 7/11 með Beyoncé í því tíunda. Laddi kemur svo á eftir henni með Snjókorn falla, ein sog áður segir.

https://www.youtube.com/watch?v=K5r68gNkqMQ

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár