Blóðugasti niðurskurður í sögu RÚV framundan - þjónusta verulega skert

Stjórn RÚV í heild sinni, Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri, og fram­kvæmda­stjóri félags­ins mættu á fund fjár­laga­nefndar Alþingis síð­degis í gær. Á fund­inum ítrek­aði stjórn RÚV ósk sína að fallið yrði frá fyr­ir­hug­aðri lækkun útvarps­gjalds­ins, svo hægt verði að tryggja áfram­hald­andi starf­semi félags­ins. Að óbreyttu stefnir í blóð­ug­asta nið­ur­skurð í sögu RÚV. Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því hvað fram fór á fundi fjár­laga­nefndar, þar sem nefndin leit­aði upp­lýs­inga um hvaða áhrif fyr­ir­huguð lækkun útvarps­gjalds­ins myndi hafa á rekstur RÚV. Á fund­inum brugðu full­trúar RÚV upp mynd af umfangi þess nið­ur­skurðar sem félagið stendur frammi fyrir að óbreyttu.

Á sama tíma og stjórn RÚV ræddi við fjár­laga­nefnd komu nokkur hund­ruð manns saman á Aust­ur­velli til að krefj­ast þess að stjórn­völd falli frá lækkun útvarps­gjalds­ins.

Árlegur niðurskurður upp á 700 milljónir


Að óbreyttu mun útvarps­gjaldið lækka um ára­mótin úr 19.400 krónum niður í 17.800 krónur, og svo aftur 1. jan­úar árið 2016 niður í 16.400 krónur. Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2015 fær félagið 3,5 millj­arða króna úr rík­is­sjóði til rekst­urs­ins, sem er 119 millj­ónum króna meira en á yfir­stand­andi ári til að mæta verð­lags­breyt­ingum. Þá fær félagið auka­fram­lag upp á 181 milljón króna úr rík­is­sjóði, með skil­yrðum þó, meðal ann­ars að vaxta­greiðslur RÚV verði lækk­aðar.

[quote font="0" align="right"]„Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gerir rekstr­ar­á­ætlun RÚV ráð fyrir að fyr­ir­huguð lækkun útvarps­gjalds­ins muni leiða til nauð­syn­legs nið­ur­skurðar í rekstri félags­ins fyrir hátt í 700 millj­ónir króna á ári.“[/quote]

Með lækkun útvarps­gjalds­ins um ára­mótin er hins vegar áætlað að rík­is­sjóður verði af um 300 millj­ónum króna. Eins og fram hefur komið er RÚV yfir­skuld­sett, að megn­inu til vegna gam­alla líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­inga, og getur ekki staðið undir fjár­hags­legum skuld­bind­ingum sínum.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gerir rekstr­ar­á­ætlun RÚV ráð fyrir að fyr­ir­huguð lækkun útvarps­gjalds­ins muni leiða til nauð­syn­legs nið­ur­skurðar í rekstri félags­ins fyrir hátt í 700 millj­ónir króna á ári. Rekstr­ar­á­ætl­unin hefur verið yfir­farin af óháðum aðilum, að því er heim­ildir Kjarnans herma.

Til að rétta af efna­hag félags­ins und­ir­býr RÚV nú sölu á lóð­inni við útvarps­húsið við Efsta­leiti, sem borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti nýverið að skipu­leggja undir íbúða­byggð. Til stendur að nota sölu­and­virðið til að borga niður skuldir félags­ins, og þá er einnig til skoð­unar að selja útvarps­húsið sjálft. Ingvi Hrafn Ósk­ars­son stjórn­ar­for­maður RÚV og Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri, hafa sagt að óskert og óbreytt útvarps­gjald myndi standa undir rekstri félags­ins, gangi fyr­ir­huguð eigna­sala eftir. Fram hefur komið að þrátt fyrir sölu á eignum RÚV, þarf félagið óbreytt útvarps­gjald til að standa undir lög­bundnum skyldum sínum.

Þjóðin mun finna verulega fyrir skertri þjónustu


Stjórn RÚV, sem skipuð er tíu full­trúum sem til­nefndir eru af Alþingi þvert á flokka, eru ein­huga í afstöðu sinni til fjár­hags­stöðu félags­ins. Á fundi fjár­laga­nefndar Alþingis í gær kom fram í máli full­trúa RÚV að gangi fjár­laga­frum­varpið eftir muni það kalla á umfangs­mikla upp­stokkun á hlut­verki RÚV og nauð­syn­legan nið­ur­skurð af þeirri stærð­argráðu sem ekki hefur áður sést í sögu félags­ins. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans vör­uðu full­trúar RÚV við því að breyt­ingin feli í sér svo mikla skerð­ingu á þjón­ustu að félagið muni ekki geta staðið undir lög­bundum skyldum sínum og lík­legt væri að þjóðin myndi bregð­ast illa við þegar umfang nauð­syn­legs nið­ur­skurðar liggur fyrir. Ekki verði lengra gengið í hag­ræð­ingu, nú væri ekk­ert eftir nema kjarna­starf­semi félags­ins og því ein­ungis hægt að bregð­ast við stöð­unni með því að skera í burtu ákveðna þætti í þjón­ustu RÚV.

[caption id="attachment_14430" align="aligncenter" width="640"] Stjórn­endur RÚV telja að nið­ur­skurð­ar­að­gerðir félags­ins muni vekja við­brögð á meðal almenn­ings. Þjóðin muni finna veru­lega fyrir skertri þjón­ustu RÚV.[/caption]

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur stjórn RÚV ekki enn hafið und­ir­bún­ing á yfir­vof­andi nið­ur­skurði hjá félag­inu, enda telur hún í verka­hring Alþingis að leggja línur í þeirri vinnu með hlið­sjón af umfangi breyt­ing­anna sem framundan eru á rekstri RÚV að óbreyttu. Ljóst er, miðað við stöð­una sem uppi er, að Alþingi þarf fyrst að taka ákvörðun um hvaða þættir í starf­semi RÚV skuli víkja og sam­hliða breyta útvarps­lögum.

Upplýstu fjárlaganefnd um umfang niðurskurðarins


Nefnd­ar­menn í fjár­laga­nefnd ósk­uðu eftir upp­lýs­ingum um af hvaða stærð­argráðu nauð­syn­legur nið­ur­skurður yrði að óbreyttu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans nefndu stjórn­endur RÚV að nið­ur­skurð­ur­inn væri svip­aður að umfangi og tvær Rás 1 og umtals­vert til vibótar, öll inn­lend dag­skrár­gerð í sjón­varpi eða allt frétta­svið RÚV en það sinnir fréttum í öllum miðlum, veðri, frétta­skýr­ing­ar­þáttum á borð við Kastljós og starf­semi á lands­byggð­inni.

[quote font="0" align="right"]„Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og vara­for­maður fjár­laga­nefndar, sagði í fréttum RÚV í gær að ekki komi til greina að falla frá lækkun útvarps­gjalds­ins.“[/quote]

Ljóst má vera að með brott­hvarfi Rásar 1, eða veru­legs sam­dráttar í inn­lendri dag­skrár­gerð í sjón­varpi, mun koma til veru­legrar skerð­ingar á menn­ing­ar­hlut­verki RÚV og fræðslu­efni mun minnka til muna. Þá myndi blóð­ugur nið­ur­skurður á frétta­sviði félags­ins hafa veru­legar skerð­ingar í för með sér á frétta- og örygg­is­hlut­verki RÚV og hætt við að stars­femi á lands­byggð­inni myndi drag­ast saman enn frekar. Tveir þættir í starf­semi RÚV standa hins vegar undir sér, það er Rás 2 og erlent sjón­varps­efni, hvort tveggja vegna aug­lýs­inga­tekna.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og vara­for­maður fjár­laga­nefndar, sagði í fréttum RÚV í gær að ekki komi til greina að falla frá lækkun útvarps­gjalds­ins. Fjár­laga­nefnd mun ræða fjár­lög árs­ins 2015 á fundi sínum klukkan 14:00 í dag. Fjár­laga­frum­varpið verður svo afgreitt sem fjár­lög árs­ins 2015 eftir þriðju umræðu í þing­inu í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár