Pæling dagsins: Er hægt að breyta kerfinu til að halda í lækna?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Deilan milli stjórn­valda og lækna er hvergi nærri leyst og mikil hætta á ferðum, ef ekki næst lausn í deil­una. Hún snýst um kaup og kjör, en líka fram­tíð­ar­sýn og metnað fyrir hönd heil­brigð­is­kerf­is­ins. Hvernig á það að þró­ast og hvernig er hægt að skapa aðstöðu hér á landi sem við­heldur og eflir sér­fræði­þekk­ingu? Ein hug­mynd hefur ekki mikið verið rædd, sem bréf­rit­ari hefur stundum fært hug­ann að. Það er að búa til hvata í náms­lána­kerf­inu sem getur unnið gegn því að læknar fari úr landi og komi aldrei aftur. Til dæmis að hluti náms­lána­skuldar falli niður, læri fólk til sér­fræði­læknis, ef það kemur heim til vinnu. Þetta eru vissu­lega ein­ungis óút­færðar hug­myndir, en þó má ekki úti­loka að breyt­ingar á náms­lána­kerf­inu geti verið lyk­ill­inn í því að vinna gegn speki­leka í stéttum þar sem alþjóð­leg þekk­ing er fyrir hendi. Gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum er þannig, að launa­hækk­anir um ein­hverjar pró­sentur breytir ekki miklu hvað varðar launin. En ef það er gerð kerf­is­breyt­ing, með réttum hvötum, þá getur það meira gagn gert til lengdar. Þessari pæl­ingu er hér með komið á fram­færi...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár