53 fá yfir milljón í STEF-gjöld fyrir árið 2014

STEF, Samband tón­skálda og eig­enda flutn­ings­réttar, greiðir út 420.103.975 krónur í höf­unda­rétt­ar­greiðslur (það sem stundum er kallað STEF-gjöld) fyrir árið 2014. Er það 13,56 pró­sent hækkun á milli ára en heild­ar­út­hlutun hefur hækkað jafnt og þétt und­an­farin ár.

Greitt er árlega til rétt­hafa tón­listar í sam­ræmi við fjölda spil­ana í útvarpi, á tón­leikum og víðar. Við geiðsl­urnar í ár bæt­ast um 40 millj­ónir í styrki sem STEF veitir í gegnum sjóði sína. End­an­legt rekstr­ar­upp­gjör liggur þó ekki fyrir svo ekki er hægt að greina frá heild­ar­upp­hæð­inni sem stendur.

Guðrún Björk Bjarna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri STEFs, segir hækk­un­ina á höf­unda­rétt­ar­greiðsl­unum nú skýr­ast að hluta vegna þess hve vel rekst­ur­inn hefur gengið und­an­farin ár og hækk­unar á rekstr­ar­reikn­ingi sam­tak­anna um um það bil 6 pró­sent á árinu.

„En aðal­lega skýrist hækk­unin af auknum flutn­ingi íslenskrar tón­listar erlendis,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann. „Við höfum lagt meiri áherslu á að tón­leika­hald­arar erlendis skili inn laga­listum og til­greini hvað þeir flytja.“

Rétt­hafar tón­listar eru í mörgum til­fellum ekki aðeins tón­list­ar­menn­irnir sjálfir eða höf­undar, heldur eiga mörg fyr­ir­tæki eða sam­tök höf­unda­rétt af tón­list. Heild­ar­upp­hæðin sem greidd er út berst því ekki ein­vörð­ungu til tón­list­ar­mann­ana sjálfra.

Þá njóta erlendir rétt­hafar einnig góðs af tón­list­ar­spilun hér á landi. Af heild­ar­greiðslum þetta árið fer rúm­lega þriðj­ungur eða 149.546.048 krónur til erlendra aðila.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Höf­unda­rétt­ar­greiðslur eru greiddar út í sam­ræmi við spil­anir í útvarpi, á tón­leikum eða í öðrum almanna­rýmum.[/caption]

Höfundaverkum fjölgar


Hjá STEF eru 11.726 verk skráð í eigu 1.754 höf­unda. Þeir sem fengu úthlutað meira en 500 þús­und krónum í ár voru 127 tals­ins en 53 fengu meira en eina milljón í höf­unda­rétt­ar­greiðslur.

Þrír fjórðu þeirra sem fá úthlutað fá minna en 100 þús­und krónur eða 1.343. Þá fengu 304 úthlutað á bil­inu 100-500 þús­und krónum. Lág­marks­út­hlutn er 3.000 krónur, en nái greiðsla ekki þeirri upp­hæð bíður hún þar til hún safn­ast upp og nær lág­mark­inu.

Á hverju ári fjölgar höf­unda­verkum sem skráð eru hjá STEF um þrjú þús­und verk. Árið 2014 fjölg­aði með­limum í sam­tök­unum um 130. Nú eru 69.491 höf­unda­verk á skrá hjá STEF.

Greiðslur úr sjóðum STEF munu seint geta orðið eini tekju­stofn tón­list­ar­manna sem vilja lifa á tón­list­inni einni saman. „Ef maður einn góðan hitt­ara sem nær góðri útbreiðslu inn­lands, þá fær við­kom­andi lag 500-600 þús­und. Það verður seint ein­hver ríkur af þessu á Íslandi. Þetta er bara einn af tekju­póst­inum fyrir tón­list­ar­menn,“ segir Guðrún Björk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár