Birna Anna Björnsdóttir kaupir 7,2 prósent hlut í Kjarnanum

Birna Anna Björns­dóttir hefur keypt 7,2 pró­sent hlut í Kjarn­anum miðlum ehf. Hún er því komin í breiðan hóp hlut­hafa Kjarnans, sem hyggur á frek­ari upp­bygg­ingu og vöxt á næstu miss­erum.

„Með þeim hröðu og miklu breyt­ingum sem eru að eiga sér stað í fjöl­miðlun skiptir máli að hlúa að sjálf­stæðri og vand­aðri blaða­mennsku. Kjarninn hefur þegar sannað sig sem spenn­andi og öfl­ugur mið­ill og ég hlakka til að taka þátt því að því móta fram­tíð hans,“ segir Birna Anna.

Birna Anna hefur mikla reynslu af rit­störfum og blaða­mennsku. Starfaði meðal ann­ars sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins á árunum 1998 til 2008, ýmist í fullu starfi eða hluta­starfi með­fram námi. Hún er með BA próf í heim­speki frá Háskóla Íslands og MA próf í bók­mennta- og menn­ing­ar­fræðum frá New York Uni­versity (NYU). Hún er búsett í New York ásamt manni sínum og tveimur börnum.

Birna Anna hefur skrifað bæk­urnar Klisju­kenndir (Mál og menn­ing 2004) og Dís (Forlagið 2000). Þá skrif­aði hún kvik­mynda­hand­rit sam­nefndrar kvik­myndar, Dís, sem frum­sýnd var árið 2004.

Lít­ils­háttar breyt­ingar hafa orðið á hlut­hafa­hópnum frá því til­kynnt var um hluta­fjár­aukn­ingu, nýja stjórn og ráð­gjafa­ráð. Breyt­ing­arnar hafa verið til­kynntar til fjöl­miðla­nefndar líkt og lög gera ráð fyrir. Magnús Hall­dórs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son, sem eru í hópi stofn­enda og starfs­manna Kjarnans, tóku þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og eru nú stærstu ein­stöku hlut­hafar félags­ins með 13,9 pró­sent hlut hvor. Stofn­endur félags­ins og starfs­menn eiga rúman meiri­hluta, eða tæp­lega 63 pró­sent hluta­fjár.

Í stjórn Kjarnans eru Hjálmar Gíslason, for­maður, Vil­hjálmur Þor­steins­son og Guðrún Inga Ing­ólfs­dóttir.

Eigendur Kjarnans eru eft­ir­far­andi:


  • Magnús Hall­dórs­son, 13,90%

  • Þórður Snær Júl­í­us­son, 13,90%

  • Miðeind ehf., í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar, 12,77%

  • Hjalti Harð­ar­son, 9,44%

  • Gísli Jóhann Eysteins­son, 9,44%

  • Ægir Þór Eysteins­son, 9,44%

  • HG80 ehf. í eigu Hjálmars Gísla­sonar, 7,55%

  • Birna Anna Björns­dóttir, 7,20%

  • Fagri­skógur ehf., í eigu Stefáns Hrafn­kels­sonar, 5,80%

  • Ágúst Ólafur Ágústs­son, 4,64%

  • Jónas Reynir Gunn­ars­son, 2,96%

  • Birgir Þór Harð­ar­son, 2,96%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár