Útgerðin hefur hagnast um rúma 97 milljarða króna frá árinu 2009

Útgerðir smá­báta og fiski­skipa á Íslandi hafa hagn­ast um 97,5 millj­arða króna á síð­ast­liðnum fimm árum, eða frá árinu 2009. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Creditinfo tók saman að beiðni Kjarnans, en töl­urnar eru fengnar úr árs­reikn­ingum útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna.

Í sam­bæri­legri frétt sem Kjarninn gerði um hagnað geirans í októ­ber, kom fram að útgerðin hefði hagn­ast um hátt í átta­tíu millj­arða króna á tíma­bil­inu, en þá áttu nokkur hund­ruð félög enn eftir að skila inn árs­reikn­ingum fyrir rekstr­ar­árið 2013. Á þeim tíma­punkti höfðu 595 útgerð­ar­fyr­ir­tæki skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2013, en í dag hafa 1056 útgerðir smá­báta og fiski­skipa af þeim 1173 fyr­ir­tækjum sem falla undir ÍSAT flokk­un­ina skilað inn árs­reikn­ingum. Frestur til að skila inn árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 rann út 31. ágúst síð­ast­lið­inn.


Mesti hagnaður greinarinnar undanfarin fimm ár


Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­ingum nam hagn­aður útgerð­anna, eftir skatta, afskriftir og vaxta­gjöld, rúmum 29 millj­örðum króna árið 2013, sem er besta ársnið­ur­staða geirans á und­an­förnum fimm árum. Hagur fyr­ir­tækj­anna hefur vænkast hratt á tíma­bil­inu, en sem dæmi um upp­gang grein­ar­innar má nefna að árið 2009 nam hagn­aður útgerð­ar­innar 4,6 millj­örðum króna. Hagn­að­ur­inn tók svo stökk árið eftir, og nam tæpum 15,4 millj­örðum króna í árs­lok 2010.

Hagnaður útgerða fiski­skipa nam rúmum 24,2 millj­örðum árið 2013, sam­an­borið við tæpan 21 millj­arð króna árið 2012. Þá nam hagn­aður útgerða smá­báta rúmum 4,8 millj­örðum í árs­lok 2013, en þær högn­uð­ust um tæpa 2,2 millj­arða króna árið áður.

Í lok síð­asta árs hljóð­uðu heild­ar­eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna upp á tæpa 216 millj­arða króna, en þá nam eigið fé félag­anna tæpum 58,5 millj­örðum króna.

Hafa ber í huga að fréttin byggir ein­vörð­ungu á árs­reikn­ingum fyr­ir­tækja sem gera út fiski­skip og smá­báta til veiða fyrir rekstr­ar­árið 2013. Samkvæmt riti Hag­stof­unnar um hag fisk­veiða og fisk­vinnslu nam hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­ins, sam­kvæmt árs­greiðslu­að­ferð, ríf­lega 57 millj­örðum króna, eða 21,5 pró­sentum, sam­an­borið við 22,6 pró­sent árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár