Fjórir af hverjum tíu íslenskum læknum búsettir erlendis

Tæplega 40 pró­sent allra starf­andi íslenskra lækna eru búsettir erlendis. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lækna­fé­lagi Íslands búa 731 af 1.831 læknum erlendis og um 1.100 þeirra hér­lendis. Miðað er við lækna sem eru með lækn­inga­leyfi og eru yngri en 70 ára. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Í frétt­inni segir að félagið hafi upp­lýs­ingar um 406 íslenska lækna í Svíþjóð, 132 í Noregi, 94 í Banda­ríkj­unum, 57 í Danmörku, 29 í Bret­landi, tíu í Hollandi, tvo í Þýska­landi og einn í Ástralíu. Lækna­fé­lagið hafði ekki upp­lýs­ingaar um hvort lækn­arnir væri allir í fulla starfi. Í Morg­un­blað­inu segir að eitt­hvað sé um að læknar sem skráðir eru hér­lendis vinni erlendis í fullu starfi eða í hluta­starfi.

Margir ætla ekki að koma heim


Hluti þeirra íslensku lækna sem starfa erlendis eru við sér­fræði­nám. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans þá ætlar stór hluti þeirra ekki að snúa heim að loknu sér­námi heldur starfa áfram erlendis, miðað við núver­andi starfs­að­stæður lækna á Íslandi. Þetta hefur komið fram í óform­legum könn­unum sem læknar í sér­námi hafa gert í sínum hópi.

Ekki var hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hversu margir læknar sem eru erlendir rík­is­borg­arar starfi á Íslandi.

Hjúkrunarfræðingar fara tímabundið


Virkir með­limir í Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga sem eru búsettir hér­lendis eru 3.959. Í þeim hópi eru með­limir félags­ins sem eru komnir á eft­ir­laun. Alls voru 493 félags­menn búsettir erlendis.

Í Morg­un­blað­inu segir hins vegar að tals­vert algengt sé að íslenskir hjúkr­un­ar­fræð­ingar færu tíma­bundið til starfa í öðrum löndum en störf­uðu að öðru leyti hér­lendis. Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­ingar heldur ekki utan um slíkar vinnu­ferðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár