Samherji kaupir 20 prósent hlut í Nergaard AS í Noregi

Þýsk dótt­ur­fé­lög Samherja, Icefresh GmbH í Frank­furt og Cuxhavener Reederei GmbH í Cuxhaven, hafa eign­ast rúm­lega 20% hlut í norska félag­inu Nergaard AS, sem er eitt af stærstu sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum Noregs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Samherja sem birt er á heima­síðu félags­ins.

„Nergaard AS á sér langa sögu í norskum sjáv­ar­út­vegi og er meg­in­starf­semi þess veiðar, vinnsla og sala sjáv­ar­af­urða. Félagið rekur m.a. fimm tog­ara, er með starfs­stöðvar á sex stöðum í Norður-Noregi en höf­uð­stöðvar Nergaard eru í Tromsö. Velta Nergaard hefur verið nálægt 35 millj­örðum króna á ári og hafa vinnslur félags­ins á und­an­förnum árum tekið á móti nálægt 50.000 tonnum af bol­fiski og um 100.000 tonnum af upp­sjáv­ar­fiski. Afurðir félags­ins eru m.a. frystur og ferskur botn­fiskur, salt­fiskur, skreið, fryst síld, loðna og mak­ríll,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samherji hóf þát­töku í rekstri þýskra útgerða í Cuxhaven árið 1994. Félögin gera út tog­ara til veiða í Norður Atl­ants­hafi og hefur rekst­ur­inn gengið vel, að því er segir í til­kynn­ingu. Fram­kvæmda­stjóri þýsku útgerð­anna er Haraldur Grét­ars­son.

Icefresh GmbH var stofnað í Cuxhaven árið 2004 og er til­gangur félags­ins að vinna og mark­aðs­setja ferskan fisk á Þýska­lands­mark­aði. Félagið hefur vaxið hratt og staða þess er sterk á þýska mark­að­inum fyrir ferskar fiskaf­urðir. Árið 2012 flutti Icefresh alla sína starf­semi til Frank­furt. Á þessu ári er áætlað að velta félags­ins verði um 10 millj­arðar króna og að unnið verði úr 15.000 tonnum af hrá­efni. Vöxtur félags­ins hefur verið eft­ir­tekt­ar­verður og fjár­fest­ingin í Nergård er rök­rétt fram­hald þar sem yfir 80% af veltu félags­ins stafar frá norskum fiski og fiski lönd­uðum í Noregi. Fram­kvæmda­stjóri Icefresh GmbH er Sig­mundur Andr­és­son.

Rekstur Samherja hefur aldrei gengið betur en und­an­farin ár. Í fyrra hagn­að­ist félagið um 22 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár