Spegill spegill herm þú mér

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Jennifer Clement

Beðið fyrir brottnumdum

Þýðandi: Ingunn Snædal

Útgef­andi: Bjartur

„Nú þurfum við að gera þig ljóta, sagði mamma. Hún flaut­aði. Hún stóð svo nálægt að munn­vatn spýtt­ist á háls­inn á mér með flaut­inu. Ég fann bjór­lykt. Ég fylgd­ist með því í spegl­inum þegar hún dró svartar kola­slóðir á and­lit mitt. Þetta er ömur­legt líf, hvísl­aði hún.“

Öðru hverju ber­ast okkur fréttir af óöld í Mexíkó. Enda­lausum hjaðn­inga­vígum og lög­leysu sem sækir elds­neyti í þá ótrú­legu auðs­upp­sprettu sem fíkni­efna­smygl yfir norð­ur­landa­mærin hefur reynst, þrátt fyrir hið enda­lausa „stríð gegn fíkni­efnum“. Tölfræði um ástandið gerir það t.d. að minnsta kosti álíka mann­skætt og kostn­að­ar­samt og mörg þau átök sem krefj­ast, og fá, fulla athygli og mis­gagn­leg afskipti Vest­ur­veld­anna.

Á meðan fæð­ast van­sköpuð börn í fátækum sveitum kyn­slóð eftir kyn­slóð vegna eit­urs sem á að úða yfir val­múa­akrana, en endar á íbú­unum sam­kvæmt sam­komu­lagi úðar­anna og fíkni­bar­ón­anna.

Og stúlku­börn sem eru svo óheppin að fæð­ast fal­leg eru falin í holum og/eða snoðuð og tann­dregin svo þau freisti ekki glæpon­anna og fylli flokk hinna brottnumdu.

Um þetta brotna og furðu­lega sam­fé­lag skrifar amer­íski rit­höf­und­ur­inn Jennifer Clement þessa áhrifa­ríku bók um stúlk­una Ladydi, skap­bráða og drykk­fellda móður hennar, fólkið umhverfis þær og sam­fé­lagið umhverfis þau öll. Sögu sem er kannski ekk­ert bók­mennta­legt þrek­virki en er fyrst og fremst ætlað að opin­bera hörmu­legar hlið­ar­afleið­ingar nútíma­geggj­un­ar­innar.

Þetta er kvenna­heimur, gerður nán­ast óbyggi­legur vegna græðgi og sið­leysi karl­anna sem stýra und­ir­heimunum og ves­al­mennsku hinna, sem und­an­tekn­inga­laust eru stungnir af norð­ur­fyrir landa­mærin og hættir að senda pen­inga til fram­færslu barna sinna. Sið­ferð­is­skurnin er ekki alltaf mjög þykk og öðru hverju vellur bræðin og örvænt­ingin fram, en merki­lega oft er sam­hjálp­ar­hvötin nægi­lega sterk hjá þessum konum, ekki síst í kvenna­fang­els­inu sem þó er lýst sem hinum versta stað.

Bókin hefur verið sögð sverja sig í ætt við aðrar “heim­il­da­grunn­aðar” skáld­sögur, In Cold Blood eftir Truman Capote, t.d. Það er ekki út í hött. Þrúgur reið­innar kemur líka upp í hug­ann. Ekki fyrir það að Beðið fyrir brottnumdum jafn­ist á við þessar af stíl­snilld eða stærð. Það gerir hún ekki. En drif­kraft­ur­inn, erindið, er af sama toga: Að bera vitni um eitt­hvað sem hefur gerst, er að ger­ast, má ekki ger­ast.

Þetta er göfug hefð og góð bók. Hún kemur út í hinum metn­að­ar­fulla Neon-flokki Bjarts, sem er góður vett­vangur til að kynna sér nýjar erlendar bók­menntir sem svo auð­veld­lega gætu farið fram­hjá manni. Ég veit heldur enga mein­bugi á þýð­ingu Ingunnar Snædal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár