Fyrrverandi framkvæmdastjóri DV ákærður fyrir skattalagabrot

Sér­stakur sak­sókn­ari hefur ákært Boga Örn Emilsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra DV, fyrir meiri­háttar skatta­laga­brot. Meint brot hans varða hátt í 43 millj­ónir króna að því er fram kemur í ákæru máls­ins, sem Kjarninn hefur undir höndum.

Bogi Örn er ákærður sem fram­kvæmda­stjóri einka­hluta­fé­lags­ins Skjals til 31. mars árið 2010, og sem stjórn­ar­for­maður félags­ins frá 29. júlí 2010. Tveir aðrir fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjórar félags­ins eru sömu­leiðis ákærðir fyrir meiri­háttar skatta­laga­brot, en brot þeirra varða ann­ars vegar rúmar 5,9 millj­ónir króna og hins vegar ríf­lega sjö millj­ónir króna.

Þre­menn­ing­unum er gefið að sök brot á lögum um virð­is­auka­skatt og stað­greiðslu opin­berra gjalda í rekstri einka­hluta­fé­lags­ins Skjal. Sér­stakur sak­sókn­ari krefst refs­ingar yfir þeim og að þeir verði dæmdir til greiðslu alls sak­ar­kostn­aðar, en brot þre­menn­ing­anna varða allt að sex ára fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár