Stjórnarformaður RÚV svarar Guðlaugi Þór fullum hálsi

Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, lög­maður og stjórn­ar­for­maður RÚV, skrifar harð­yrta grein í Morg­un­blaðið í dag undir fyr­ir­sögn­inni „Rökþrot þing­manns­ins?“ þar sem hann ræðst að full­yrð­ingum Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, alþing­is­manns, um fjár­mál félags­ins.

Í grein­inni sakar Ingvi Hrafn Guðlaug Þór um að hafa sett fram hæpnar full­yrð­ingar um fjár­mál Rík­is­út­varps­ins að und­an­förnu. „Hefur hann m.a. borið brigður á þá kunnu stað­reynd, sem greint var frá í frétta­tíma Rík­is­út­varps­ins, að Alþingi hefur jafnan ákveðið í fjár­lögum að Rík­is­út­varpið fái ekki útvarps­gjaldið óskert. Taldi frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins óhjá­kvæmi­legt að árétta frétt sína um útvarps­gjaldið af þessu til­efni. Guð­laugur telur sig greini­lega hafa fengið hirt­ingu sem undan svíður og krefst nú afsök­unar frá Rík­is­út­varp­inu.“

Staðlausir stafir þingmannsins um fjármál RÚV


Þá skrifar stjórn­ar­for­maður RÚV: „Vandinn er hins vegar sá að á und­an­förnum vikum hefur Guð­laugur ítrekað ferið fram með stað­lausa stafi um fjár­mál Rík­is­út­varps­ins og beitt fyrir sig útúr­snún­ingum sem hvergi snerta kjarna máls­ins. Hann verður að sætta sig við að á það sé bent.“

Ingvi Hrafn sakar Guðlaug Þór um að hafa borið á borð „talna­leik­fimi“ með því að vísa hálfan ára­tug, eða lengra, aftur í tím­ann til þess að finna rök­stuðn­ing fyrir máli sínu. „Guð­laugur burð­ast við að reikna út hver fjár­fram­lög Rík­is­út­varps­ins voru fyrir árið 2009, með mis­tækum árangri, eins og það hafi nokkra ein­ustu þýð­ingu fyrir umræðu um þá stöðu sem nú er uppi.“

Einkennilegur viðsnúningur


Ingvi Hrafn bendir á í grein sinni að á síð­ast­liðnum fimm árum hafi um 1.650 millj­ónum króna af inn­heimtu útvarps­gjaldi verið ráð­stafað til ann­arra verk­efna hins opin­bera. „Ein­kenni­leg­ast er þó að Guð­laugur bregst ekki við árétt­ingu Rík­is­út­varps­ins með því að draga fram stað­reyndir máls­ins, t.d. með því að leggja fram upp­lýs­ingar úr fjár­lögum und­an­geng­inna ára. Þess í stað kveður hann Stein­grím J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, til vitnis í mál­inu, þar sem Stein­grímur mun ein­hvern tím­ann hafa sagt eitt­hvað svipað og hann sjálfur. Það virð­ist að mati þing­manns­ins vera full­nægj­andi grund­völlur fyrir kröfu hans um afsökun.“

Að end­ingu skrifar stjórn­ar­for­maður RÚV: „Hlýtur að telj­ast nokk­urt nýmæli að þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggi slíkt traust á yfir­lýs­ingar og upp­lýs­ingar frá Stein­grími J. Fram til þessa hefur traust milli þing­mann­anna tveggja ekki virst gagn­kvæmt. Það skyldi þó ekki vera að Guð­laugur grípi þetta síð­asta hálm­strá þegar rök­þrot blasir við?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár