Pæling dagsins: Stjórnmálamenn að rífa niður RÚV án stefnu

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og þing­flokkar stjórn­ar­flokk­anna sem heild, virð­ast hafa ein­beittan vilja til þess að skera niður fjár­fram­lög til RÚV. Á næstu nítján dögum mun koma í ljós hvernig fjár­lögin verða afgreidd, en margt bendir til þess að útvarps­gjaldið verði lækkað úr 19.400 krónum í 17.800 krónur 1. jan­úar og svo skert í 16.400 krónur árið 2016. Bréf­rit­ari fær ekki betur séð, en að þetta þýði nið­ur­fell­ingu á þjón­ustu RÚV sem ekki er víst að stjórn­mála­menn átti sig á hversu mikil er, þar sem þessi aðgerð heggur beint inn í grunn­rekst­ur­inn. Þetta sam­svarar því að Rás 1 og Rás 2 verði svo gott sem alveg lagðar niður í heild sinni, starfs­fólki fækkað hjá öllum deildum og þjón­ustan stór­lega skert í sjón­varpi.

Það sem er verst í þessu, og veldur áhyggjum, er að stjórn­völd með mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann Illuga Gunn­ars­son fremstan í flokki hafa ekki mótað neina heild­stæða og djúpa stefnu um hverju þessar breyt­ingar eiga að skila og hvernig þær sam­ræm­ast lög­bundnu hlut­verki. Í versta falli geta svona aðgerðir aukið kostnað, og grafið undan menn­ing­ar­legu hlut­verki RÚV. Það hafa komið fram sann­fær­andi hag­fræði­leg rök fyrir mik­il­vægi menn­ing­ar­starf­semi og opin­bers stuðn­ings við hana, meðal ann­ars frá Dr. Ágústi Ein­ars­syni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur alla tíð, ekki síst þegar Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, var for­maður hans, stutt við menn­ing­ar­starf­semi af ýmsu tagi og talað fyrir mik­il­vægi hennar. Á þetta hefur Benedikt Erlings­son, leik­ari og leik­stjóri, bent. Nú virð­ist hafa orðið mikil breyt­ing á, meðal ann­ars með til­komu nýrrar kyn­slóðar Sjálf­stæð­is­manna. Svo virð­ist sem stjórn­ar­flokk­arnir líti svo á, að RÚV eigi ekki að starfa eftir núgild­andi lögum heldur eigi það að vera mun minna að umfangi og þessar breyt­ingar eigi að keyra í gegn, gegn vilja lista­manna og fólks sem starfar við menn­ing­ar­starf­semi. Þetta gæti reynst stjórn­ar­flokk­unum dýr­keypt, og hrint af stað atburð­ar­rás sem erfitt er að sjá hvernig endar...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár