RÚV fær ekki óbreytt útvarpsgjald - „Verið að breyta RÚV í ÍNN“

Breyt­ing­ar­til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar, að útvarps­gjaldið renni að óbreytt og að fullu til rekst­urs RÚV, var felld á Alþingi nú fyrir skemmstu, með 34 atkvæðum gegn 24.

Fyrr í dag var breyt­ing­ar­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar, um að fallið yrði frá fyr­ir­hug­aðri lækkun á útvarps­gjald­inu, sömu­leiðis felld á þingi með yfir­gnæf­andi meiri­hluta.

Eins og fram hefur komið gerir fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar ráð fyrir að útvarps­gjaldið lækki úr 19.400 krónum í 17.800 krónur þann 1. jan­úar næst­kom­andi, og svo enn frekar í jan­úar árið 2016, þegar það verður 16.400. Lækkunin um ára­mótin hefur ekki áhrif á fram­lög rík­is­sjóðs til RÚV, sem fær 3,5 millj­arða króna sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. Það er 119 millj­ónum króna meira en á yfir­stand­andi ári, en hækk­unin er til­komin vegna verð­lags- og launa­breyt­inga. Með breyt­ing­unni um ára­mótin lækka hins vegar tekjur rík­is­ins vegna útvarps­gjalds­ins um 300 millj­ónir króna á milli ára.

„Fortíðarþrá hefndar og þöggunar“


Atkvæða­greiðslan fór fram með nafna­kalli, og nokkrir þing­menn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði í ræðu­stól Alþingis að með ákvörðun sinni væri rík­is­stjórnin að færa dag­skrár­gerð á RÚV yfir í það form sem tíðk­ist á sjón­varps­stöð­inni ÍNN.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, sak­aði rík­is­stjórn­ina um að skella skolla­eyrum gagn­vart afstöðu stjórnar RÚV, sem stjórn­völd skip­uðu, sem hefur sagt að ráð­ast þurfi í umfangs­miklar nið­ur­skurð­ar­að­gerðir verði útvarps­gjaldið lækkað.

Val­gerður Bjarna­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, sak­aði rík­is­stjórn­ina um tví­skinn­ung með því að lofa óskertu útvarps­gjaldi til RÚV á sama tíma og það er lækkað.

Þá sak­aði Birgitta Jóns­dóttir, kafteinn Pírata, rík­is­stjórn­ina um aðför að RÚV, og tengdi hana við þing­menn stjórn­ar­flokk­anna sem lýst hafa yfir óánægju sinni með frétta­flutn­ing félags­ins.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, minnti þing­heim á að verið væri að hækka fram­lög til rík­is­ins til RÚV um 485 millj­ónir króna á milli ára. Hækk­un­ina má að hluta til rekja til 182 millj­óna króna auka­fram­lags til RÚV, sem búist er við að verði sam­þykkt í atkvæða­greiðslu á þingi síðar í dag. Auka­fram­lagið er þó háð skil­yrðum, meðal ann­ars um að vaxta­greiðslur félags­ins verði lækk­aðar.

Þá sagði Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar væru í takt við vilja Davíðs Odds­sonar, þar sem for­tríð­ar­póli­tík hefndar og þögg­unar ráði för.

Ákall útvarpsstjóra til þings virðist lítið hafa gert


Magnús Geir Þórð­ar­son útvaps­stjóri sendi út ákall til Alþingis í dag, með færslu sem hann birti á Facebook síð­unni sinni. Þar sagð­ist hann vona að þingið myndi hlusta á þjóð sína og falla frá fyr­ir­hug­aðri lækkun á útvarps­gjald­inu.

Nokkrir þing­menn voru fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una í dag, þeirra á meðal voru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Elín Hirst, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fyrr­ver­andi frétta­stjóri á RÚV.

Í áskorun stjórnar RÚV til Alþingis, sem send var þing­mönnum og fjöl­miðlum 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn, er lækkun útvarps­gjalds­ins harð­lega mót­mælt. Þá var þar full­yrt að nái lækk­unin fram að ganga blasi stór­felld breyt­ing á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins með stór­tæk­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerðum en áður hafi sést hjá félag­inu. Þá hefur stjórn og stjórn­endur RÚV áður full­yrt að óbreytt og óskert útvarps­gjald myndi standa undir rekstri félags­ins. Eins og fram hefur komið er fjár­hags­staða RÚV afar bág­borin, félagið er yfir­skuld­sett, að mestu vegna gam­alla líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­inga. Vonir standa til að fyr­ir­huguð eigna­sala hjá félag­inu muni rétta rekst­ur­inn af, en þar kemur einna helst til álita að selja Útvarps­húsið við Efsta­leiti, og lóð­ina við húsið ýmist saman eða í sitt hvoru lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár