ESA hefur rannsókn - kemur stjórnvöldum í opna skjöldu

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) til­kynnti í dag að stofn­unin hafi hafið form­lega rann­sókn á því hvort raf­orku­samn­ingur á milli Lands­virkj­unar og þýska fyr­ir­tæk­is­ins PCC, um afhend­ingu á raf­orku til fyr­ir­hug­aðrar kís­il­málm­verk­smiðju PCC að Bakka í Norð­ur­þingi, feli í sér ólög­mæta rík­is­að­stoð. Þetta kemur fram á vef efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

„Inn í þá rann­sókn ESA kemur einnig samn­ingur á milli Lands­nets hf. og PCC um teng­ingu PCC við flutn­ings­kerfi raf­orku. Báðir samn­ing­arnir eru við­skipta­samn­ingar sem gerðir eru beint á milli við­kom­andi fyr­ir­tækja og PCC og koma stjórn­völd ekki að gerð þeirra. Engu að síður eru samn­ing­arnir til­kynn­ing­ar­skyldir til ESA þar sem um fyr­ir­tæki í opin­berri eigu er að ræða,“ segir í til­kynn­ingu efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Í ákvörðun ESA frá því í dag felst ekki afstaða stofn­un­ar­innar til þess hvort um ólög­mætan rík­is­styrk kunni að vera að ræða eða ekki, heldur ein­göngu að stofn­unin telur ástæður til að kanna það nánar með því að hefja form­lega rann­sókn á efni þess­ara tveggja samn­inga.

„ESA hefur fyrr á árinu sam­þykkt fjár­fest­ing­ar­samn­ing milli PCC og íslenska rík­is­ins, vegna verk­efn­is­ins að Bakka, sem og lög nr. 41/2013 um heim­ild rík­is­sjóðs til að fjár­magna upp­bygg­ingu inn­viða vegna atvinnu­starf­semi á Bakka. Ákvörðun ESA í dag hefur engin áhrif á þessar fyrri ákvarð­anir ESA. Í fram­haldi af ákvörðun ESA í dag gefst aðilum máls, og þriðju aðilum, færi á að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi við ESA,“ segir í til­kynn­ingu efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár