Útvarpsstjóri: „Vonandi hlustar þing á þjóð sína“

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri seg­ist vona að Alþingi hlusti á vilja þjóðar sinnar og fallið verði frá fyr­ir­hug­aðri lækkun á útvarps­gjaldi. Lækkunin muni leiða til stór­felldra breyt­inga á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins (RÚV) með stór­tæk­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerðum en áður hafa sést hjá félag­inu. Það megi ekki ger­ast. Þetta kemur fram í stöðu­færslu á Facebook sem Magnús Geir skrif­aði fyrir skemmstu.





Atkvæðagreiðsla fer fram í dag


Í dag fer fram atkvæða­greiðsla á Alþingi um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar, sem gerir meðal ann­ars ráð fyrir lækkun á útvarps­gjald­inu.

Stjórn RÚV mót­mælti þeim áformum harð­lega með áskorun í byrjun síð­ustu viku þar sem sagði meðal ann­ars: „Nú stendur til að útvarps­gjaldið lækki um ára­mótin úr 19.400 kr niður í 17.800 kr og svo að útvarps­gjaldið lækki aftur að ári niður í 16.400 kr. Gangi þessar fyr­ir­ætl­anir eftir blasir við stór­felld breyt­ing á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins með stór­tæk­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerðum en áður hafa sést hjá félag­inu. Augljóst má vera að sú þjón­usta sem Rík­is­út­varpið veitir tæki stakka­skiptum við þessa breyt­ingu með sam­drætti á öllum sviðum. Þá er ljóst að áætl­anir um úrbætur á til­teknum þáttum í starf­sem­inni eru ófram­kvæm­an­legar en nýir stjórn­endur og stjórn hafa hug á að efla þjón­ustu við lands­byggð­ina, bjarga efni í Gull­kistu Rík­is­út­varps­ins og gera aðgengi­legt þjóð­inni, efla fram­boð á vönd­uðu barna­efni á íslensku, leggja aukna áherslu á inn­lenda fram­leiðslu og bæta dreifi­kerfið um land allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár