Hagtölurnar „á skjön“ við flesta mælikvarða

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði á fundi vegna vaxta­á­kvörð­unar í dag að hag­tölur sem sýndu litla einka­neyslu, eins og lesa mátti um í hag­tíð­indum sem birt­ust 5. des­em­ber, væru „algjör­lega á skjön“ við flesta mæli­kvarða sem not­aðir væru til þess að meta veltu í hag­kerf­inu. Þannig hefði inn­flutn­ingur stór­auk­ist milli ára, um 15 pró­sent. „Ríki sem eykur inn­flutn­ing um 15 pró­sent milli ára, er nær örugg­lega í vexti í neyslu,“ sagði Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri.

Eins og Kjarninn hefur greint frá und­an­farna daga komu hag­töl­urnar sem Hagstofa Íslands greindi frá 5. des­em­ber mörgum á óvart. Þær sýndu 0,5 pró­sent hag­vöxt á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og 0,2 nei­kvæðan vöxt á þriðja árs­fjórð­ungi. Ekki síst er það mun minni einka­neysla en flestir höfðu spáð fyrir um sem kom á óvart. Spá höfðu gert ráð fyrir 2,7 til 3,1 pró­senta hag­vexti á árinu. Seðla­bank­inn spáir um 2,9 pró­sent hag­vexti, og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn 3,1 pró­sent.

[caption id="attachment_14103" align="alignnone" width="2048"] Már Guð­munds­son var áber­andi á kynn­ing­ar­fund­inum í morgun, í jóla­peysu. Már hóf fund­inn á því að minn­ast á þetta þar sem hann væri að leggja góðu mál­efni lið, bar­áttu Barna­heilla gegn ein­elti. Mynd: Birgir Þór.[/caption]

Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefnda, vegna ákvörð­unar um 0,5 pró­sentu­stiga stýri­vaxta­lækkun í 5,25 pró­sent, er hamrað á því að upp­lýs­ing­arnar séu veru­lega á skjön við það sem áður var talið. „Hag­vöxtur á þessu ári, þar af einkum vöxtur einka­neyslu, stefnir í að verða minni en áður var spáð, ef marka má nýj­ustu þjóð­hags­reikn­inga. Þær tölur eru hins vegar veru­lega á skjön við aðrar vís­bend­ingar um þróun eft­ir­spurnar, hvort heldur gögn um inn­flutn­ing eða ýmsa mæli­kvarða á veltu. Batinn á vinnu­mark­aði heldur áfram, þótt eitt­hvað hafi hægt á vexti vinnu­afls­eft­ir­spurnar. Áfram er útlit fyrir góðan vöxt inn­lendrar eft­ir­spurnar og lands­fram­leiðslu á næstu miss­erum.“

Már sagði enn fremur að um þessar mundir mæld­ist lít­ils háttar verð­hjöðnun, og að verð­bólgu­horfur fyrir næstu miss­eri væru nokkuð góðar með til­liti til verð­bólgu­mark­miðs upp á 2,5 pró­sent. Verð­bólga mælist nú 1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár