Pæling dagsins: Hvað er að gerast í hagkerfinu?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Hvað er að ger­ast í íslenska hag­kerf­inu? Það er stórt spurt að þessu sinni, en ekki að ástæðu­lausu. Hagstofa Íslands spáði 2,7 pró­senta hag­vexti 14. nóv­em­ber en birti síðan frum­gögn um hag­vöxt þremur vikum síðar, sem sýndu að hag­vöxt­ur­inn á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hefði verið 0,5 pró­sent og nei­kvæður um 0,2 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi. Þetta er óra­fjarri spám um þrjú pró­sent hag­vöxt á árinu, eins og margir spáðu, meðal ann­ars Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn. Verð­bólga mælist nú eitt pró­sent, og voru stýri­vextir lækk­aðir um 0,5 pró­sentu­stig í morgun. Stýri­vextir eru 5,25 pró­sent. Margt bendir til þess að verð­hjöðnun geti komið upp á næst­unni, sem er nú næstum óhugs­andi staða hér á landi, þar sem verð­bólgu­draug­ur­inn hefur lifað í vellyst­ingum. Olíuverð hefur fallið um 40 pró­sent á skömmum tíma, og slíkar sveiflur á þess­ari grunn­hrá­vöru geta vel leitt til lækk­unar á verð­lagi á tíma­bil­inu á eftir. Til við­bótar koma svo jan­ú­ar­út­söl­urnar, en þær hafa yfir­leitt alltaf komið til verð­lækk­unar í tölum Hagstofu Íslands og leitt til minni verð­bólgu, þó þær vegi nú ekki mjög þungt. Svo ein breyta, sem almenn­ingur tengir sig ágæt­lega við, sé nefnd. Þegar þessi mynd er skoðuð út frá þess­ari stöðu þá er erfitt að svara því hvað sé eig­in­lega að ger­ast í íslenska hag­kerf­inu...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár