Stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentustig

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,5 pró­sentur.

„Hag­vöxtur á þessu ári, þar af einkum vöxtur einka­neyslu, stefnir í að verða minni en áður var spáð, ef marka má nýj­ustu þjóð­hags­reikn­inga. Þær tölur eru hins vegar veru­lega á skjön við aðrar vís­bend­ingar um þróun eft­ir­spurnar, hvort heldur gögn um inn­flutn­ing eða ýmsa mæli­kvarða á veltu. Batinn á vinnu­mark­aði heldur áfram, þótt eitt­hvað hafi hægt á vexti vinnu­afls­eft­ir­spurnar. Áfram er útlit fyrir góðan vöxt inn­lendrar eft­ir­spurnar og lands­fram­leiðslu á næstu miss­erum,“ segir í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands.

„Verð­bólga minnk­aði í 1% í nóv­em­ber og lít­ils háttar verð­hjöðnun mælist sé horft fram hjá áhrifum hús­næð­is­kostn­aðar. Lítil alþjóð­leg verð­bólga og stöðugt gengi krónu halda aftur af verð­bólgu þrátt fyrir tölu­verðar launa­hækk­anir. Því eru horfur á minni verð­bólgu á næst­unni en við síð­ustu vaxta­á­kvörðun í nóv­em­ber. Verð­bólga verður því ef að líkum lætur nokkuð undir mark­miði a.m.k. fram yfir mitt næsta ár. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa einnig lækkað á und­an­förnum mán­uðum og eru nú á helstu mæli­kvarða við verð­bólgu­mark­miðið.

Þrátt fyrir lækkun nafn­vaxta í nóv­em­ber hafa raun­vextir bank­ans hækkað frekar sökum umtals­verðrar hjöðn­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga og eru hærri en staða hag­sveifl­unnar og nær­horfur gefa til­efni til. Því eru for­sendur til að draga hluta hækk­unar raun­vaxta til baka.

Fram­vinda nafn­vaxta ræðst eins og alltaf af þróun eft­ir­spurnar og verð­bólgu. Nafn­vextir eru nú nálægt því sem ætla má að sam­rým­ist jafn­vægi í þjóð­ar­bú­skapnum og verð­bólgu við mark­mið. Haldist verð­bólga undir mark­miði og verði launa­hækk­anir í kom­andi kjara­samn­ingum í sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið gætu skap­ast for­sendur fyrir frek­ari lækkun nafn­vaxta. Miklar launa­hækk­anir og vöxtur eft­ir­spurnar gætu hins vegar grafið undan nýfengnum verð­stöð­ug­leika og valdið því að hækka þurfi vexti á ný,“ segir í til­kynn­ingu.

Kjarninn mun fylgja þessum fréttum eftir í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár